Vorið - 01.12.1970, Page 20

Vorið - 01.12.1970, Page 20
FRAMHALDSSAGAN: JULES VERNE: Gront shipstjóri og börn hons HANNES J. MAGNÚSSON þýddi. FJÓRÐI KAFLI Á þrítugasta og sjöunda breiddarstigi Það var almennur fögnuður meðal skipverja á „Duncan", þegar fregnir bárust af ákvörðun Paganels. Róbert 'hljóp upp um hálsinn á honum, svo að þessi lærði maður var því nær dottinn á þilfarið. „Þetta er efnilegur snáði,‘‘ mælti hann. „Ég skal taka að mér að kenna honum landafræði.“ Þegar þess er gætt, að John Mangles ætlaði að gera hann að góðum sjó- manni, Glenvan ætlaði að gera úr hon- um mann „með hjartað á réttum stað,“ majórinn ætlaði að kenna honum æðru- leysi, IJelena ætlaði að ala hann upp sem göfugmenni og mannvin, og María hafði ásett sér að kenna honum þakk- læti, var það deginum ljósara, að það hlaut að verða fyrirmyndar maður úr þessum pilti. Sjöunda september rann „Duncan“ fyrir blásandi 'byr yfir miðjarðarlínuna og komst þar með á suðurbvel jarðar. Allir skipverjar Iiáru þá von í brjósti, að ferðin mundi takast vel, og bjart- sýnastur af öllum var þó skipstjórinn sjálfur. Ef til vill hefur þessi bjartsýni átt rætur sínar að rekja til þeirrar ein- lægu óskar að geta orðið Maríu Grant að liði, því að hann var farinn að hafa 162 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.