Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 43
Hér er Arngrímur Jóhannsson
að setja benzín á flugvél, sem
mikið hefur verið notuð til
kennsluflugs. Hún er ensk af
gerðinni Auster MK5 og getur
flutt þrjá faraþega auk flug-
manns.
á tveimur flugvöllum. Kennarinn hjálp-
ar nemandanum aS átta sig á landslagi
eftir lcorti og leiðbeinir honum í aðflugi
að hinum ókunnu flugvöllum. Nemand-
inn fer síðan sömu leiðina einsamall, og
fa;r skrifað upp á lendingarvottorð á
flugvöllunum. Öll gögn eru síðan send
loftferðaeftirliti ríkisins, en Samgöngu-
málaráðuneytið gefur jlugskírteinið út.
Lágmarks flugtími fyrir einkaflugprój
er 60 klst. og hver flugtími kostar frá kr.
700—1200; og fer það eftir gerð
kennsluvélar, það má þó gera ráð fyrir
að einkaflugpróf kosti ekki undir kr.
60.000.
Og hvaða gagti má svo hafa af eirlka-
flugprófi? Því er auðvitað vandsvarað.
Flestir sem að öðru jöfnu þurfa ekki að
ferðast mikið hafa náttúrlega takmark-
Qð gagn af slíku prófi, og jafnvel þótt
ferðalög vœru nauðsyn, þá er einkaflug-
vélin ákaflega takmörkuð í slœmum
veðrum. Eflaust verður einkaflugpróf
aldrei eins almennt og bílpróf, þótt bil-
ið mœtti vissulega minnka. Hér á Akur-
eyri eru 12 einkaflugmenn, en miHi 7
og 8 þúsund bílstjórar, 2 einlcaflugvélar
og sennilega yfir 2 þúsund einkabílar.
Einkaflugprófið er því jyrir flesta
jyrst og fremst „sport“. Ákaflega
skemmtilegt, en dálítið dýrt. Það gefur
tœkijœri til að sjá og athuga staði, sem
annars vœri ekki líini og tœkifœri til.
T. d. er í einni stuttri flugferð hœgt að
grandskoða Glerárdal, Vindheimajökul,
TröllafjaU og Kerlingu. Þetta er auðvit-
að ekki eins náin snerling við náttúruna
eins og fjallgöngur, en það breytist e. t.
v. þegar þyrilvœngjur eða flugvélar, sem
geta lent lóðrétt, verða almennari og
ódýrari en þœr eru nú.
VORIÐ 185