Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 25

Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 25
„Já, hvers vegna ekki?“ sagði Pagan- el. „Ferðalög eru menntandi fyrir unga menn. Við fjórir og þrír hásetar af „Duncan“.“ „Hvað eigið þér við? A ég þá ekki að vera með?“ spurði John Mangles. „Kæri J ohn,“ mælti greifinn, „við felum þér lil varðveizlu það, sem okkur er dýrmætast á þessari jörð. Eg treysti engum betur en þér til að leysa það hlutverk vel af hendi.“ „Megum við þá ekki koma með ykk- ur?“ spurði Helena hrygg. „Góða Helena,“ mælti greifinn, „ferð okkar stendur aðeins skamman tíma, og við sjáumst öll aftur eftir nokkrar vik- ur, og ...“ „Já, ég skil allt,“ mælti Helena. „Far- ið í guðs nafni, góða ferð!“ Samtalið varð ekki lengra, og nú var farið að undirbúa ferðina. Burtfarardag- urinn var ákveðinn 14. október. Allir hásetarnir buðu sig fram lil fararinnar, og Glenvan varð að varpa hlutkesli um, hverjir ættu að fara, til þess að særa engan þessara rösku sveina. Varaskip- stjórinn, Tom Austin, og tveir hásetar, Wilson og Mulrady, urðu fyrir valinu. Nú var allt komið í lag. John Mangles ætlaði að leggja úr höfn um sama leyti og greifinn og fylgdarlið hans hóf för sína; hann vildi gjarnan verða fyrri lil austurstrandarinnar en Glenvan og menn hans. Á ákveðnum tírna söfnuðust allir saman í káetunni, Glenvan, Paganel, Lindsay, Róbert Grant, Tom Austin, Wilson og Mulrady, allir vel vopnum búnir og algerlega ferðbúnir. Fylgdar- menn og múldýr biðu þeirra uppi á ströndinni. „Þá er stundin komin,“ mælti greif- inn loks. „Guð veri með ykkur,“ mælti Helena klökk. Maður hennar tók hana í faðm sinn og kvaddi hana innilega. Því næst var gengið upp á þilfar og lagt frá skipinu. Helena kallaði einu sinni enn: „Guð veri með ykkur, vinir mínir,“ en María veifaði til bróður síns í síðasla sinn. ,Guð mun hjálpa okkur,“ sagði Pag- anel, „og þið megið treysta því, að við reynum einnig að hjálpa okkur sjálfir eins vel og við getum.“ „Áfram!“ kallaði John Mangles til vélstjórans á „Duncan“. „Allir haldi af stað!“ skipaði Glen- van greifi. Um leið og greifinn og fylgdarlið hans reið eftir ströndinni, sigldi „Dunc- an“ með fullri ferð út á hafið. ÁLFHILDUR ÓLAFSDÓTTIR Mynd þessi átti að fylgja sögunni „Kappleikurinn“ í síðasta blaði. VORIÐ 167

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.