Vorið - 01.12.1970, Qupperneq 8

Vorið - 01.12.1970, Qupperneq 8
lontunni aftur í hylinn og sá að hér var hennar staður. Þarna mátti líka fara á sjó. Systkinin tóku því þvottabalann hennar mömmu og fleyttu honum út á hylinn og settust upp í. Þau sigldu um víðattur þessa út- hafs á glæstu fleyi, komu víða við á ó- kunnum töfralöndum og færðu björg í bú. Ef skipi þeirra hlekktist á og hvolfdi snögglega, svo að farmenn þess og far- kostur lentu í hafið, var stutt til lands, og sólin sem skein allan daginn þurrk- aði föt þeirra fljótt. En börnin urðu svöng, og þá hlupu þau heim til mömmu og fengu nýbakaða flatköku með þykku, rauðu smjöri, sem mamma hafði smurt út á yztu jaðra. Þau hlupu með brauðið út að læknum aftur og settust í grænan hvamm hans og nutu þessa ljúffenga réttar. Og þau lögðust fyrir með hönd undir hnakka og horfðu í gegnum ský loftsins, sem liðu fram og tóku á sig ótal myndir á för sinni yfir himininn. Stundum líkt- ust þau hásigldum skipum með gínandi trjónum, á næstu augnablikum hreyttust þau í dýr eða menn. Þessar kvikmyndir loftsins veittu börnunum svo margar yndisstundir, að sólin var langt gengin vestur, er athygli þeirra heindist aftur að læknum og lífinu hið næsta sér. Hér í hvamminum við lækinn átti að- alblóm túnsins höfuðstöð. Hófsóleyjan. Hún hófst á gildum legg móti 'himni sínum, og ofarlega á leggnum uxu út hófblöðkurnar fagurgrænu, sem héldu blóminu gullna í lófa sér. Þetta blóm elskuðu börnin meir en fífil og smára, því mat þeirra var meira mat fegurðar en hags. Hófsóleyjan var leiksystir þeirra og umgjörð veruleika þeirra, svo einlæg og blíð eins og æska þeirra og umhverfi. Krían, þessi skrýtni fugl, sveif yfir læknum, stundum stöðvaðist hún í loft- inu, blakaði löngum vængjunum og starði niður í hylinn, svo steypti hún sér eldsnöggt niður í liylinn og kom upp aftur með ofurlítið, gljáandi síli í nefinu og flaug hurt. Þetta þótti drengn- um vel af sér vikið, og þó að hann elsk- aði kríuna minna en aðra fugla, dáðist hann að snarleik hennar og fimi. En stúlkan sagði að krían væri vondur fugl að taka litla sílið, því stelpur eru svo viðkvæmar. En hörnin fóru að fleyta kerlingar. Þau fundu flöt, lítil helluhlöð í eyrinni, þessi hellublöð gátu skoppað óralangt eftir vatninu, ef laglega er fleytt og að sjálfsögðu komust hellur drengsins miklu lengra en stúlkunnar. í eyrinni fundu þau einnig marglita steina og jafnvel kuðunga og hún veitti þeim marga ánægjustund, svo rík sem hún var af djásnum. En börnin höfðu ekki tekið eftir því, að sólin hafði nú rennt sér hak við fjöllin í vestri og kvöldrökkrið blátt og djúpt hjúpaði hæðirnar og lagðist yfir flóann og sundin. En himininn, sem hafði verið svo fagurblár allan daginn varð skyndilega rauður. Þá kom telp- an auga á gullinn hnött, sem hófst yfir hálsana í austri. Hún hrópaði: Nei, bróðir, sjáðu! Hvað er þetta? Drengur- inn horfði lengi þögull á þetta undar- lega fyrirbæri kvöldsins, og svaraði systur sinni engu. En systir uppgötvaði að hnötturinn 150 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.