Vorið - 01.12.1970, Qupperneq 37

Vorið - 01.12.1970, Qupperneq 37
allir enskir konungar liafa veriS krýnd- ir síðan Vilhjálmur Bastarður var og hét. Síðan gengum við inn í kirkjuna. Og það var ekki ofsögum sagt að hún væri fögur, að minnsta kosti hef ég aldrei séð svo fagra kirkju. Maður gjör- samlega fellur í stafi, þegar komið er inn í kirkjuna. Þvílíkt skraut hafði ég aldrei áður séð. Eg var eins og í leiðslu og til vonar og vara kleip ég í handlegg- inn á mér til að athuga, hvort mig væri nokkuð að dreyma, en sem betur fór fann ég að ég var vakandi. Að lokum gengum við svo út úr þessari fögru kirkju og í átt að „Houses of Parla- ment“ þar sem ihin víðfræga klukka „Big Ben“ er staðsett. Er við komum að hlið- inu stóð þar fílefldur og ekki árennileg- ur lögreglumaður. Skildist mér á honum að enginn fengi að koma inn fyrir, vegna þess að „BBC“ var að taka eitt- hvað upp þar inni. Fórum við þá burtu, fengum okkur bíl og ókum að skrifstofu Flugfélags íslands og hittum þar Jóhann Sigurðsson og undirmann hans Róbert Miller. Var þar spjallað lengi og að lok- um fórum við Sóley og Grímur heim á hótel en Sveinn varð eftir lil að hafa tal af blaðamönnum. Um kvöldið fórum við svo í bíó. Hét myndin „Paint your wagon“. Þetta var ákaflega „flott“ bíó og myndin sérstaklega skemmtileg. Morguninn eftir vöknuðum við snemma, borðuðum góðan morgunverð og fórum svo í dýragarðinn. Þar var nú margt að sjá. Fyrst sáum við uglur af mörgum stærðum og gerðum. Síðan fór- um við í páfagaukahúsið. Þar inni var mikill hávaði. Grímur hætti sér bara rétt í dyrnar en flúði svo út aftur. Hann hef- Grímur, Sóley og Sveinn. ur líklega ekki verið vanur slíkum hávaða. Er við höfðum skoðað páfa- gaukana og fundið Grím fórurn við að skoða apana. Þeir litlu vöktu mesta at- hygli. Því næst fórum við og litum á stærri dýrin. Þar sáum við t. d. antílóp- ur, Ijón, tígrisdýr, gaupur, gíraffa, fíla og pínulitla kengúru. Við gengum svo- lítið lengra og sáum þá mikið af fólki í kringum einhvern hringlaga pall. Er við komum nær sáuin við að uppi á pallinum stóð maður og hjá honum fíls- ungi. Allt í einu renndi fíllinn rananum niður í vasa mannsins og náði jjar í eitl- hvað góðgæti. Stakk liann því umsvifa- laust upp í sig og „brosti“ svo út að eyr- um. En ánægja hans var skammvinn, því að skömmu seinna tók maðurinn í ranann á fíln-um og teymdi liann með sér inn í fílahúsið. Á leiðinni út úr garð- inum skoðuðum við svo mörgæsirnar. VORIÐ 179

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.