Vorið - 01.12.1970, Page 12

Vorið - 01.12.1970, Page 12
sem biðja þig einhvers, nú átt þú að hj álpa mér, svo að ég geti heyrt það, sem presturinn segir. Þú skalt fá það borgað, kæri Guð. Þú skalt fá alla peningana mína. Ennfremur hugsaði hann: — Auðvit- að á Guð heima í kirkjunni. En hvernig á ég að fara að til að ná tali af honum? Hér er svo margt fólk. Og ætli hann skilji bendingar mínar? Pavo varð áhyggjufullur. En það dugði ekki að spyrja hitt fólkið á sleð- anum. Það var svo dimmt, að enginn sá hendingar hans. Hann braut heilann á meðan hann horfði á skuggann af hest- inum. Blakkur var duglegur hestur. ■ Á hann voru hengdar hjöllur, sem endur- ómuðu frá lautum og hæðum. Til kirkj- unnar var hálf míla vegar. En ferðin gekk eins og í sögu. Snjóþung grenitrén komu þjótandi í fang Pavos. En hið allra furðulegasta var að tunglið þaut áfram með þeim. Annars var tunglið vant að silast hægt og hægt yfir himinhvolfið. Nú nálguðust þau kirkjuna. Margt var af hestum og sleðum fyrir utan hana. Þegar kirkjudyrnar opnuðust, hlasti við Ijósadýrðin eins og í himnaríki. En í stóra ganginum var mikill troðningur. Þess vegna varð Pavo viðskila við hin. Hann var svo lítill að allt fullorðna fólk- ið hratt honum áfram. Pavo vissi ekkert hvar hann mundi lenda að lokum. Rétt á eftir var hann kominn inn að allarinu með hvíta dúknum, logandi Ijós- unum og stóru altaristöflunni. Það var mynd af frelsaranum á krossinum. Fyr- ir innan gráturnar stóð presturinn í full- um messuskrúða. Veslings Pavo hélt í einfeldni sinni að présturinn væri Guð. Iiann gekk áfram, lagði peninginn sinn á gráturnar og pataði með höndunum, til þess að gefa í skyn, hvers hann ósk- aði svo heitt. En presturinn sá hann ekki. Hann söng og tónaði og las bænir. Pavo heyrði ekkert af þessu. Mamma var að svipasl um eftir drengnum sínum og kom auga á hann, fór og sótti hann. En einn var sá, sem sá Pavo litla og skildi merkja- mál hans. Það var hinn niikli ósýnilegi Guð á himnum. Hann sem sér allt og hann skildi að Pavo vissi ekki betur. Pavo sat við hlið móður sinnar á bekknum. Þar gat hann séð ljósin, prest- inn og fólkið. Hann starði upp í háu hvelfinguna og á fallegu myndirnar. En vegna þess að hann gat ekkert heyrt, korn það fyrir að hann dottaði. Þá sendi Guð engil sinn til hans í draumi. Eng- illinn lalaði við Pavo, ekki með orðurn, aðeins með huganum. Engillinn sagði: — Pavo! — Já, ég er hérna. — Guð hefur heyrt bænir þínar. Þú skalt fá að heyra rödd þagnarinnar. En ég segi þér það, að mennirnir megna ekki að greiða Guði með peningum. Hann er nógu ríkur, því að hann á allan heiminn. Þegar þú ferð út úr 'kirkjunni, skaltu sækja peninginn þinn og gefa fá- tæku konunni hann sem stendur þarna við dyrnar. En ef þú vilt greiða Guði eitthvað fyrir öll gæði hans við þig, þá skall þú elska hann umfram allt annað. Boðum hans skalt þú hlýða og vera góð- ur við alla. Líka við dýrin. I sama bili vaknaði Pavo. Guðsþjón- ustunni var lokið, og fólkið fór að tín- 154 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.