Vorið - 01.12.1970, Page 18

Vorið - 01.12.1970, Page 18
og rauðum buxum. Hann hafði vinstri hendi í buxnavasanum en hélt á kertinu með hægri hendi. Dálítið glott lék um ófrítt andlitið eins og hann vildi segja: Lízt þér ekki nógu vel á mig! Þegar drengurinn fór að heiman tók hann með sér þennan litla jólasvein og í kvöld mundi hann hér úti á öldum Atlants'hafsins verða gleggst táknið um jólin heima. Hann hafði í gamni kallað hann Giljagaur, því að jólasveinar eru búsettir uppi í fjöllum og hafa ýmis skemmtileg nöfn. Og þessu nafni skyldi hann halda. Hann lét rautt kerti í jólasveininn -— honum fannst allt af mest viðeigandi, að það væri rautt — og kveikti á því. Og þarna við þetta kertaljós ætlaði hann að leitast við að finna jólin. Og það brást ekki. Þau komu. Hann var kominn heim í stofur til foreldra sinna og systkina. Þau voru að búa sig til aftansöngs í kirkjuna. Klukkan var að verða sex. Og eftir guðsþjónustuna í kirkjunni og alla helgisöngvana var aftur farið heim á leið í hálfgerðri leiðslu. Helgi- sögnin alkunna frá Betlehem blundaði í sál hans og fléttaðist á undarlegan hátt við væntanlegar jólagjafir. Hann hafði séð jólagjafirnar uppi í bókahillunum heima og hafði grun um, að hann ætti þar 4 eða 5 böggla. Hvaða barnasögu skyldi hann fá? Þegar þau komu heim settist f j ölskyld- an að jólaborðinu og gæddi sér á jóla- matnum, sem var alltaf yndislegur hjá mömmu. Á eftir meðan mamma og syslir hans voru að þvo upp var spjallað saman, en börnin renndu hýrum augum til jóla- gjafanna. — Hvernig líkaði ykkur í kirkjunni? spurði pabbi. Helgi, sem var elztur, varð fyrir svör- um. — Það var mjög hátíðlegt. —- Já, helgisagan um hirðana á Betle- hemsvöllum verður ný á hverjum jólum. Munið nú í kvöld, börnin góð, þegar þið biðjið kvöldbænina ykkar að þakka guði fyrir handleiðslu hans á liðnu ári. — En á ekki að fara að útbýta jóla- gjöfunum? spurði Ella. Hún var aðeins fimm ára. — Jú, börn. Þegar mamma ykkar og systir koma inn úr eldhúsinu, þá verða teknar úpp jólagjafirnar. Það má ekki hreyfa við þeim fyrr en allir eru við- staddir. Og skömmu síðar rann upp hin lang- þráða stund. Jólabögglarnir voru allir látnir á borðið, lesið á miðana, sem fylgdi þeim, og þeir lesnir í sundur. Þeg- ar hver bafði fengið sína böggla, var farið að taka þá upp. Gleðin ljómaði á andlitum barnanna, þegar leikföng, bækur og góðgæti kom innan úr jólabögglunum. Þau sýndu hvert öðru gjafirnar og ljómuðu af ánægju. — Sjáðu þennan bíl. Er hann ekki dásamlegur! — Ég fékk Ævintýri H. C. Ander- sens. Sjáðu myndina af Hans klaufa! — Sj áðu þennan konfektkassa! Þetta er mynd af Goðafossi. Þannig létu þau dæluna ganga. Bezt mundi hann eftir, þegar hann fékk bókina „Nonni“. Þá var liann álta 160 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.