Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 27

Vorið - 01.12.1970, Blaðsíða 27
SAGA UM ABRAHAM LINCOLN Sunnudag nokkurn sást Lincoln á gangi eftir aðalgötunni í Springfield. Hann leiddi báð'a syni sína og þeir voru báðir hágrátandi. Einn vegfarandi vék sér að forsetan- um og spurði, hvernig í ósköpunum stæði á því, að synir hans væru hágrát- andi í þessu fallega veðri á sunnudegi. „Hvað er eiginlega að þeim?“ spurði hann. „Nákvæmlega það sama og er að allri Ameríku,“ svaraði Lincoln. „Eg á þrjár valhnetur o,g þeir vilja báðir fá tvær.“ HEILAGLEIKI Lítil stúlka kom með frænku sinni inn í forna dómkirkju. Hún undraðist mjög ljósaflóðið inn um hin dýrlegu glermál- verk glugganna. Og hún spurði: „Hvaða fólk er þetta í gluggunum?“ Frænkan svaraði: „Það eru helgir menn.“ Barnið sagði: „Svo. Nú veit ég hvað það er að vera helgur maður. Það er að láta lj ósið skína í gegnum sig.“ — Hvað er líkt með dráttarvél og brauð- hníf? — Það veit ég ekki. — Það þarf að smyrja hvort tveggja. ★ — Hvað ertu að gera Berta? — Ég er að skrifa bréf. — En þú kannt ekki ennþá að skrifa? — Það gerir ekkert. Ég er að skrifa Maríu og hún kann ekki að lesa. HILDIGUNNUR FRÁ HEMESDAL Þessi fallega, norska stúlka heitir Hildigunnur Spjötvoll og er 9 ára gömul. Hún hlaut fyrstu verðlaun í verðlaunasamkeppni barnablaðsins ,,Magne“ um barnateikningar í fyrra. Verðlaunin voru ferð frá Osló til Kaupmannahafnar. VORIÐ 169

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.