Vorið - 01.12.1970, Page 38
Þegar við komum út á gÖtuna sagði
Sveinn aS við skyldum skreppa og
skoða vaxmyndasafn Madame Tussauds,
og var það gert. Er við komum þangað
keypti Sveinn miða og við gengum inn.
Fyrst komum við í sal þar sem margir
heimsfrægir menn voru. T. d. Marteinn
Lúther King, Elísabet II, John F. Kenne-
dy, Churchill, Páll páfi VI og skáldið
Charles Dickens. Því næst fórum við í
stjörnudeildina. Þar sáum við m. a.
Birgittu Bardot og Bítlana. Loks fórum
við í hryllingsdeildina. Þar voru sýndir
ýmsir morðingjar og aðrir óbótamenn.
Voru þeir annaðhvort í fangelsinu, gálg-
anum eða gapastokknum, og var tilheyr-
andi hljómlist með. Er við fórum út
gengum við framhjá mörgum spéspegl-
um og var hlegið dátt að hinum skringi-
legu myndum, sem við sáum þar. Er við
höfðum skoðað vaxmyndasafnið, feng-
um við okkur bíl og ókum að járnbraút-
arstöðinni. Sveinn keypti miða til
Brigthon, en það er borg á suðurströnd
Bretlands og þar er frægasti sjóbaðstað-
ur Breta. 'Eftir klukkustundar akstur
með járnbrautarlestinni vorum við kom-
in til Brigthon. Borgin er miklu fjiil-
mennari á sumrin en veturna, því að
margir eiga þar aðeins sumarbústaði.
Ég fór í sjóinn en þau hin spókuðu sig
bara á ströndinni. Eftir þriggja tíma
dvöl í Brigthon fórum við á járnbrautar-
stöðina aftur og vorum komin til Lon-
don um kl. 7. Þá fórum við heim á hótel,
skiptum um íöt, fengum okkur að borða
og fórum svo út að ganga.
Morguninn eftir vöknuðum við svo
við það, að bankað var á dyrnar hjá
okkur og kallað á íslenzku „vaknið
stúlkur". Við drifum okkur framúr og
klæddum okkur í skyndi. Er við kom-
um niður biðu þar þeir Sveinn og Grím-
ur. Við fórum inn í matsalinn og feng-
um okkur matarbita, en skömmu seinna
vorum við á íeið inn í borgina. I dag
var ætlunin að verzla og sjá lífvarða-
skipti við Buckingham höll. Er við kom-
um inn í „City“, mesta verzlunarhverfi
í London, var tekið til við að verzla. En
kl. 11 fórum við að sjá lífvarðaskipli
við Buckingham höll. Þar var mikill
fjöldi fólks saman kominn til að horfa
á lífvarðaskiptin. Kl. 11.30 kom svo líf-
varðasveitin þrammandi eftir götunni
og stuttu seinna hurfu þeir inn um hlið-
ið. Við sáum svo lítið, að við lögðum
leið okkar aftur inn í „City“ til að
verzla meira. Um kl. 5 fórum við svo
heim á hótel og hvíldum okkur.
Klukkutíma seinna kom Sveinn og
sagði okkur, að við ættum að mæta í
„BBC“ strax. Var nú ekið af stað en er
við komum þangað var þar fyrir Páll
Heiðar Jónsson og ætlaði hann að spyrja
okkur um ferðalagið. Að því loknu fór
Páll með okkur í þýzka knæpu, þar sem
við borðuðum pylsur á þýzka vísu og
hlusluðum á harmoniku-leikara leika
])ýzk þjóðlög af mikilli leikni. Er við
höfðum borðað okkur vel södd af þýzku
pylsunum fórum við í bíó, sem var þar
rétt hjá og sáum myndina „Hello
Dolly“.
Morguninn eflir vöknuðum við
snemma og fórum að setja niður í tösk-
urnar. Rétt fyrir kl. 9 fórum við niður,
en þar var Grímur mætlur. Hann sagði
okkur að Sveinn hefði farið á fund með
blaðamönnum, en við ættum að ganga
180 VORIÐ