Vorið - 01.12.1970, Síða 42
HÚNN SNÆDAL:
fi.i <«.\ ín
Nokkuð hefur nú verið sagt jrá námi
í svifflugi og er þá eklá úr vegi að taka
vélflugið fyrir nœst. A það var bent
hvað svifflug og svifjlugnám er mikil
félags- og samstarfsíþrótt, það er, til að
einn geti flogið, þarf hann að liafa
marga aðstoðarmenn.
Hreyfill vélflugunnar gerir alla að-
stoðarmenn óþarfa, hana getur einn
maður tekið út úr jlugskýli og flogið
umsvifalaust af stað. Sviffflugan svífur
nœsturn hljóðlaust um loftið, blístrar þó
hœrra með auknum hraða, og hvín að-
varandi, ef stýrunum er misbeitt. Þetta
gerir nemandanum auðveldara að álta
sig á stöðu og hreyfingum svifflugunn-
ar í loftinu. Hreyfill vélflugunnar yfir-
gnœfir allan annan söng og meirihlut-
ann af því, sem flugkennarinn segir, þess
vegna þarf nokkuð fleiri flugstundir í
vélflugu heldur en svifflugu til að ná
sama árangri. Hreyfillinn er nú samt það
sem heldur flugvélinni uppi, og því eklci
annað að gera, en að umbera hann.
Einflugspróf, eða sólóprófið er fyrsta
stig flugnámsins, það veitir eins og najn-
ið bendir til, handhafa réttindi til að
jljúga einsamall, þó aðeins undir umsjá
kennara, og í nágrenni heimaflugvallar.
Einjlugsprójið samanstendur af eftirfar-
andi: lceknisvottorð frá trúnaðarlcekni
Flugmálastjórnar, vottorð um heiðar-
leika og reglusemi undirskrifað af tveim-
ur valinkunnum mönnum, bóklegt próf
í flugreglum og nokkrum undirstöðuat-
riðum flugsins. 15—20 flugstundir og
verklegt próf á flugvélina.
Síðan heldur námið áfram, og nú
flýgur nemandinn til skiptis einn, eða
með kennara. Næsti áfangi er einkaflug-
próf, en það veitir prófhafa rétlindi til
að flfúga með farþega hvert á land sem
er, þó án gjaldtöku. Prófinu er skipt í
þrjá lúuta. Verklegt próf á flugvélina,
krappar beygjur, marklendingar o. fl.
Bóklegt próf, að loknu námskeiði í loft-
siglingafrœði, flugreglum, veðurfrœði,
flugeðlisfrœði og vélfrœði.
Yfirlandsflug. Flogið skal með kenn-
ara a. m. k. 200 km vegalengd, og lent
184 VORIÐ