Vorið - 01.12.1970, Síða 48
gegnum stöðina. .. . Já og til útlanda.
Þú ert með algert síma-æði. Það er
sannleikurinn.
RAGNH. (skrækir): Þér ferst síma-
sjúklingurinn þinn. . . .
KONAN Á EFRI HÆÐINNI kemur
skyndilega inn. Hún segir: Eg þoli
ekki þennan hávaða. Hvað gengur
eiginlega á? Börnin mín geta ekki
sofnað. Er þið orðin ga. . . . ga?
RAGNH.: Hann heldur því fram að ég
hringi meira. Það eru ósannindi.
JÓN: Það er út af þessum hlessuðum
símareikningi. Kerlingin hefur hringt
upp á 9.400 krónur. Hún virðist ekki
vita, að það kosti peninga að hringja.
RAGNH.: Þetta eru algjör ósannindi,
Jón. Ég verð að hringja í hana Jósep-
ínu frænku og segja henni hverskonar
skepna þú ert.
JÓN:Já, ég vissi alltaf að það endaði
með því að ég yrði að taka símann úr
sambandi.... (Kippir honum úr
sambandinu við innstunguna.)
JÓNA: Þvílíkt og annað eins. Þelta er
alveg eins og uppi hjá okkur.
INNHM. (kemur aftur í dyrnar og stam-
ar afsakandi): Fyrirgefið, ég hef af-
hent ykkur skakkan reikning. Þessi
átta að fara á efri hæðina.
JÓNA: Jesús minn. Ekki batnar það.
RAGNH og JÓN opna rétta reikninginn
í fáti.
JÓN (hrópar): ELLEFU ÞÚSUND OG
SEX HUiNDRUÐ KRÓNUR.
RAGNH.: Jón þó. ... (Þau takast á og
hafa hátt). Það hefur liðið yfir kon-
una á efri hæðinni, Jónu.
SÖGUMAÐUR: Já, það getur verið
betra að gá að sjálfvirka símanum.
Hann telur og telur, meðan talað er
og tíminn líður.
T jaldii).
Barnsibækur frá Fróda:
FRISSI Á FLÓTTA heitir ný drengjasaga
eftir Eirík Sigurðsson og er hún framhald
af Strákar í Straumey, þó alveg sjálfstæð.
Þetta er spennandi drengjasaga um ófyrir-
leitinn pilt, sem breytist til batnaðar.
ADDI OG ERNA eftir Albert Ólafsson ei
ný barna- og unglingabók I þýðingu Sig-
urðar Gunnarssonar. Bókin hlaut verðlaun
í Noregi. Höfundurinn er Islendingur og
efni hennar gerist hér á landi.
KATA í PARÍS eftir Astrid Lindgren er
þriðja Kötu-bókin ætluð ungum stúlkum.
Þýðinguna gerði Jónína Steinþórsdóttir.
Bókin lýsir brúðkaupsferð Kötu til Parísar
og auðvitað er Eva með í ferðinni og finn-
ur þar sinn ,,rétta".
PIPP í VILLTA VESTRINU er 7. Pipp-
bókin. Jónína Steinþórsdóttir þýddi. Hún
gerist meðal Flatfótar-lndíána í villta
vestrinu. Þar komast músabörnin í hann
krappan. Þessar bækur hafa náð mikilli
útbreiðslu.
Athug'ð þessar bækur, þegar þið veljið jólabækur handa börnum eða unglingum.
B^kiiiítpífaii Fróði
190 VORIÐ