Heima er bezt - 01.08.1967, Blaðsíða 36
JON A BERGI:
vorinu
C^j amli maðurinn 1 á í rúminu, sem stóð undir
súðinni frammi við dyrnar, og beið eftir vor-
Jf inu. Upphaflega hafði rúmið staðið undir stafn-
glugganum, en þegar fór að kólna, hafði það
verið flutt fram að dyrunum. Vatn vildi píska svo inn
um gluggann í austanhretum, og það var líka alltaf
einhver trekkur um hann, sem ekki var hollur fyrir
gamla manninn. Að vísu var köflótt teppi hengt fyrir
gluggann, og það bætti eitthvað úr skák. Tengdasonur-
inn hafði líka eitthvað verið að tala um að setja tvöfalt
gler í gluggann, en það var víst ekki komið og myndi
sennilega dragast eitthvað. Kannske fékkst heldur ekki
gler í kaupfélaginu. Það var svo margt, sem ekki fékkst
þar tíma og tíma.
Það var enginn miðstöðvarofn í herberginu. Þetta
hafði verið smíðaherbergi. Svo var það lagt niður og þá
notað sem geymsla eða réttara sagt ruslakompa, og eng-
um dottið í hug, að það yrði nokkurntíma notað sem
íverustaður. (Þá hafði gamli maðurinn verið hraustari
en nú og búið fyrir norðan). En svo bilaði heilsan, eins
og algengt var hjá fólki, sem komið var fast að áttræðu.
Einkum var það sjóndepran, sem háði honum. Nú, og
þar sem ekki þótti taka því að leggja miðstöðvarofn í
kompuna, þá var komið þangað með olíuvél. Hún hit-
aði allvel, en hafði bara þann leiða löst, að hún ósaði tals-
vert. Kom þá ótætis stybba í kompuna og gamli maður-
inn þoldi hana bölvanlega. Brjóstið var slæmt eftir
margar og illkynjaðar lungnabólgur. Af þeirri ástæðu,
var sjaldnar kveikt á olíuvélinni heldur en þurft hefði.
Oft var því andkalt uppi undir risinu í kompu gamla
mannsins. En hann kvartaði aldrei. Nei, það tók því
ekki.
Og nú var vetur og því nokkuð langt til vors. Gamli
maðurinn stytti sér því stundir með því að rifja upp
angan og hlýju liðins sumars. Hann hafði þá oftast
verið á fótum og gengið út. Það var svo gott að láta
goluna strjúka vangana og teyga blómailminn úr loft-
inu. Svo hafði hann rölt eftir stígnum og niður að hlið-
inu. Fyrst í stað hafði hann aldrei farið lengra. Hann
kunni heldur varla að opna lásinn. Þetta var einhver
nýtízku læsing og hann orðinn sjóndapur. Þess vegna
fékkst hann ekkert við hana. Og ekki gat hann verið
að tefja tengdason sinn eða aðra við það að kenna hon-
um, gamlingjanum einskis nýtum, að opna þennan lás.
Hliðgrindin var grænmáluð fannst honum helzt, og
það var eitthvað svo viðfelldið að þukla um rimlana.
Hann þekkti orðið hvern og einn, og þeir voru orðnir
beztu kunningjar hans eftir nokkra daga. Þá kom dreng-
urinn til sögunnar.
Dag einn, þegar gamli maðurinn stóð við hliðið og
var að klappa kunningjum sínum í hliðgrindinni, heyrði
hann skæra barnsrödd kalla: Langar þig ekki út um
hliðið?
Gamli maðurinn leit upp og sá, að drengurinn stóð á
götunni utangarðs, og ljóst hár hans glóði í sólinni.
— Ég veit ekki, væni minn. Ég er nú orðinn svo
gamall, að mér nægir víst að róla þennan spöl ofan frá.
Drengurinn stóð gleitt og hallaði undir flatt. Hann
var moldugur um hendurnar. Sennilega var hann fjög-
urra til fimm ára gamall.
— A ég að opna?
Drengurinn beið ekki eftir svari, heldur tyllti sér á
tá, rjálaði eitthvað við læsinguna og grindin laukst upp.
— Sjáðu, nú er opið! Kanntu kannske ekki að opna?
Nei, gamli maðurinn kunni ekki að opna. Og nú var
það æskan, sem rétti ellinni hönd, því drengurinn kenndi
gamlingjanum að opna hliðið. Þannig urðu þeir vinir.
Hann var kallaður Dengsi.
Þeir hittust nær því allt sumarið, og gamli maðurinn
leiddi drenginn við hönd sér eða kannske var það dreng-
urinn, sem leiddi hann. Og drengurinn sýndi honum
bílana sína og bátana, en gamli maðurinn sagði drengn-
urn sögur.
Einn dag, þegar gamlinginn kom niður að hliðinu,
var Dengsi þar elcki fyrir. Hann var þó vanur að vera
kominn á undan honum. Gamli maðurinn settist á barð
utan við stíginn og beið. En Dengsi kom ekki. Þá fór
gamli maðurinn að ókyrrast. Það skyldi þó ekki eitthvað
hafa komið fyrir drenginn, og honum flugu bílarnir
í hug. Hann staulaðist á fætur og fór að hökta niður
að aðalgötunni. Þar nam hann staðar og horfði ráðvilltur
á umferðina. En hann gat ekkert vitað um Dengsa, þótt
hann stæði þar og glápti. Þá var hann ávarpaður af
konurödd:
— Ert þú að bíða eftir einhverjum?
— Nei, ekki er það nú, en þú hefur víst ekki séð hann
Dengsa?
292 Heima er bezt