Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1970, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.03.1970, Qupperneq 19
SNÆBJÖRN JÓNSSON: Rit, sem i mun eymast „Mér finnst ég alltaf fá óbragð í munninn þegar ég les eitthvað eftir hann,“ sagði menntamaður einn ágætur við mig, er talið barst að tilteknum „fræðimanni", sem um langt skeið hefir látið talsvert til sín taka, einkum við að grafa upp sögur ólánsmanna, sem hinum þótti betur fara að látnir væru hvíla í friði í gleymdum gröf- um sínum og dysjum. Þessu var satt að segja viðlíka háttað um mig. En svo eru það aftur aðrir að mér finnst ég vera í góðum félagsskap er ég les frásagnir þeirra og hugur minn hlýnar til þeirra sjálfra. í þeim hópnum er Þormóður Sveinsson. Mér líður vel þegar ég les það sem hann hefir skrifað. Nú sé ég sjaldan íslenzk blöð. En einhverntíma löngu fyrir jól í vetur fékk dóttir mín hangiketsendingu frá kunningjakonu sinni í Reykjavík. Var búið um ketið í pappakassa og troðið utan með því dagblöðum. Þar fann ég í Mbl. umsögn ritdómara blaðsins, þess er það hefir löggilt til starfans, um síðara bindið af Minningum Þorm. Sv., eða þó öllu heldur um þær í heild. Var hann átalinn fyrir óskipulega meðferð efnisins, og yfir höfuð þótti mér sem hinn lærði „bókmenntafræðingur“ liti heldur smáum augum á ritið. Með engu móti get ég orðið honum sammála, þykir sem efninu sé vel fyrir komið og það allt vera harla merkilegt. Ég hygg að þarna sé rit sem ekki muni auðveldlega gleymast eða fyrnast. En um hinn lærða mann, er um það skrifaði, hefir mér alla tíð fundizt sem skaparinn hefði gert hann illa afskiptan, numið mjög við nögl skammt þann, er hann gaf honum af skilningi. Maðurinn virðist helzt ekkert skilja, eða þá skilja hlutina öðruvísi en aðrir menn. A einu furðaði mig hjá Þormóði, slíkur greindar- og fróðleiksmaður sem hann er. Hann ætlar að skrifa um „skriðuföllin 1954,“ en þegar hann hefir skrifað fyrir- sögnina, áttar hann sig á því, að blöðin höfðu á sínum tíma getið þeirra, og þar með tekið af honum ómakið. Þvílík firra. Blöðin eru ekki fyrir almenning nema vik- una sem þau koma út. Það var tjón að hann fékk þessa meinloku í höfuðið. Skýzt þótt skýrir séu. Það ætla ég að Þormóður hafi sannað til hlítar hvar Hvinverjadalur sé. En þegar hann fór að athuga hvernig víkja þurfti við orðum Landnámu, hugkvæmdist hon- um þá ekki, að mjög sennilega hafi orðaröðin uppruna- lega verið sú, er hann vill hafa? Þetta er þó sennilegast, og að þau hafi vikizt við annaðhvort hjá þeim er fyrst ritaði, eftir munnlegri frásögn, sökum þess að hann var sjálfur ekki nógu kunnugur staðháttum til þess að sjá umhverfið fyrir sér, eða þá hjá afskrifara síðar. Hjá þeim góðu mönnum hefir margt brenglazt í fornritum okkar. Líklega hugsar Þormóður sér, að hérmeð skuli sínum skrifum lokið. Það er illa farið, því fæddur er hann rit- höfundur. Ég vildi að hann leitaði í fórum sínum, fór- um minnisins, og færði enn í letur það er hann kynni að finna þar frásagnarvert. Alltaf mundi það verða læsi- legt. En nóg hefur hann þegar skrifað til þess, að lengi hygg ég að nafnið hans finnist. BRÉFASKIPTI Margrét Sigurðardóttir og Olga Jónsdóttir, Héraðsskólanum Reykholti í Borgarfirði, óska eftir bréfaskiptum við pilta á aldrin- um 15—17 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Helga Sigurðardóttir, Jónína Þorbjörg Hallgrimsdóttir og Stef- ania Hjartardóttir, allar í Húsmæðraskólanum að Löngumýri, Skagafirði, óska eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 18—21 árs. Svana Daðadóttir og Ester Adólfsdóttir, Laugateig 40, Reykjavík, óska eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 16—18 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Guðrún Jóhanna Jónsdóttir, Pálina Þorsteinsdóttir, Guðrún Arn- dis Jónsdóttir, Hanna Kristinsdóttir, Rannveig Einarsdóttir,Hrefna Magnúsdóttir og Ingibjörg Ingimundardóttir, allar í Nesjaskóla, Hornafirði, óska eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrin- um 14—17 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Ungur Austur-Þjóðverji hefur hug á að eignast pennavini á ís- landi. Hann er garðyrkjumaður, en tómstundagaman hans er að safna frímerkjum og ljósmyndum af kvikmyndaleikurum og söngv- urum með eiginhandaráritun. Hann hefur líka hug á að kynnast fólki í öðrum löndum í gegnum bréfaskipti. Hann skrifar bæði þýzku og ensku. — Nafn og heimilisfang: CHRISTOPH TITTMANN DDR - 88 ZITTAU KULZUFER 1811 DDR Sunna Þórarinsdóttir, Márseli, Jökulsárhlíð, Norður-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 23—28 ára. fíirgitta Guðjónsdóttir, Hafnarbyggð 62, Vopnafirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 18—21 árs. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Heima er bezt 95

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.