Heima er bezt - 01.11.1973, Side 4
BJORN JONSSON, BÆ:
Kristján Jónsson,
bóndi á Oslandi í Skagalirdi
Fimm ára snáði sem nú er nefndur Kristján á Ós-
landi — kunnur maður í Skagafirði og víðar —
man ennþá búferlaflutning foreldra sinna vorið
1910. Það var hart vor og því ekki erfiðleika-
laust að taka sig upp frá búi að Fornastöðum í Ljósa-
vatnsskarði og flytja alla leið að Hólum í Hjaltadal.
Kristján er fæddur að Víðivöllum í Fnjóskadal 27.
desember 1905, foreldrar hans voru Jón Sigurðsson frá
Fornastöðum, albróðir frú Þóru Sigurðardóttur konu
Sigurðar skólastjóra og síðar búnaðarmálastjóra. Móðir
Kristjáns var Níelsína Kristjánsdóttir frá Krossanesi við
Eyjafjörð, bæði þessi hjón voru af traustum þingeysk-
um og eyfirskum ættum. Það má segja um þau hjón
að atvikin leiða oft til langrar sögu. Eftir að Sigurður
skólastjóri og frú Þóra fluttu að Hólum kom Jón Sig-
urðsson einnig að austan sem smiður og starfsmaður
skólastjóra — á sama tíma var Flóvent Jóhannsson bú-
stjóri á staðnum, réði hann til sín sem kaupakonu Ní-
elsínu Kristjánsdóttur, — þar með lágu leiðir þessara
ungu einstaklinga saman. Þau giftu sig austur í átthög-
um Jóns og voru við búskap þar fyrstu árin en eins og
fyrr segir fluttu þau vestur 1910. Jón var smiður góður
og mun atvinnuvon í því starfi hafa stutt að flutningi
þeirra vestur yfir fjöll, hann stundaði því strax þá at-
vinnu bæði á Hólum og nærliggjandi sveitum, seinna
varð hann smíðakennari við bændaskólann og þar muna
Hjónin Kristján Jónsson og Ingibjörg Jónsdóttir, Óslandi.
380 Heima er bezt