Heima er bezt - 01.11.1973, Page 6

Heima er bezt - 01.11.1973, Page 6
Krislján á Óslandi og börn hans: Margrét, Þóra, Kristján, Svava og Jón. Margrét Kristjánsdóttir og Snorri Jónsson. Jón Kristjánsson og Margrét Einarsdóttir. Börn Jóns Kristjánssonar og Margrétar Einarsdóttur. Börn Margrétar og Snorra Jónssonar. Eins og gefur að skilja hefir Kristján á Óslandi ekki sloppið við að gegna opinberum störfum. Fyrstu kynni hans af slíku voru ungmennafélagsstörf í U.M.F. Geisli í Óslandshlíð. í því félagi segist hann hafa fengið stað- góða þjálfun og áhuga fyrir félagsmálum, þessa sögu geta áreiðanlega margir tekið undir, því að störf innan þessara samtaka voru í þá tíð einn besti skóli ungu fólki, það segir hann einnig að af öllum störfum og kynnum við menn hafi hann eitthvað lært. Kristján átti sæti í hreppsnefnd í 27 ár, oddviti í 4 ár til 1969, sýslunefnd- armaður frá 1965, sjúkrasamlagsformaður frá 1958, formaður fræðslunefndar í 15 ár og mörg ár áður í þeirri nefnd. í stjórn Búnaðarfélags Óslandshlíðar í fjölda mörg ár. í stjórn Kaupfélags Austur Skagfirð- inga 15—16 ár. Auk þessa sem ég hefi nú tahð hefir hann átt einhvern þátt í nær öllum framfaramálum sem ráðin hafa verið innan sveitar sinnar um fjölda ára. Þetta er gangur lífsins að störfin hlaðast á einstaka menn, og 382 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.