Heima er bezt - 01.11.1973, Side 16

Heima er bezt - 01.11.1973, Side 16
semi tók hann að gefa út Dagblaðið, sem fyrst kom út 6. nóv. 1914. Alls komu af því 129 blöð, hið síðasta 31. marz 1915. Blaðið var í fremur htlu broti, einblöðung- ur og flutti það ýmsar fregnir auk stríðsfréttanna, en einnig greinar um margvísleg efni, oft næsta lítilfjör- leg en skemmtileg, og spunnust nokkrar deilur út af sumum þeim málum, bæði um bæjarmál og annað. Nær ekkert var minnst á stjórnmál. Blaðið var í rauninni skemmtilegt, þótt ekki væri það stórt í sniðum, hvorki að efni né formi, og á skilið, að því verði ekki gleymt, þar sem það var fyrsta alvarlega tilraunin, til að gefa út dagblað á Akureyri. Um það var þetta kveðið (Páll J. Árdal) í Akureyrarvísum: í Dagblaðinu er fréttafans um Frakka og Prússa, um þjóðarbindindi Þýzkalands og þeirra Rússa. Og þar er allskonar áburður, og Ándersen, flaska og brauðsnúður auk Rússa og Prússa. Meðal þeirra, sem skrifuðu í Dagblaðið má nefna Ólaf Friðriksson og Frímann B. Arngrímsson. Geta má hér smáblaðs er Bergmálið hét. Gaf Jóhann Scheving það út handa Siglfirðingum, og varð það þannig fyrsta blaðið, sem tengt var við Siglufjörð, flutti það fréttir þaðan, auglýsingar og skemmtiefni. AIls komu út af því 7 tbl. sumarið 1916. Fyrir kosningarnar 20. okt. 1916, gaf Finnur Jónsson, síðar ráðherra, út Kosningablað til stuðnings Erlingi Friðjónssyni, sem þá var í fyrsta sinn í kjöri fyrir Al- þýðuflokkinn á Akureyri. Var þetta fyrsta kosninga- blaðið sem gefið var út á Akureyri og um leið fyrsta málgagn verkamanna þar. Einingin hét lítið bindindisblað, sem af komu nokkur tölublöð 1902. Tímarit. Á þessu tímabili voru þau enn fá, en þótt saga þeirra verði lengri á síðasta tímabili sögu vorrar, get ég þeirra hér, sem stofnuð voru fyrir 1918. Ársrit Ræktmiarfélags Norðurlands. Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands er elzt þeirra rita, sem enn koma út á Akureyri, og meðal elztu tímarita landsins. Árið 1903 var Ræktunarfélag Norðurlands stofnað og hóf það þegar útgáfu Ársritsins um starf- semi sína og almenn búnaðarmálefni. Ritstjórar þess hafa ætíð verið framkvæmdastjórar félagsins: Sigurður Ólafur Jónsson. Sigurðsson, síðar búnaðarmálastjóri, Jakob H. Líndal, Sigurður Baldvinsson, Einar J. Reynis, Ólafur Jónsson og Jóhannes Sigvaldason. Lengst allra stýrði Ólafur því eða í 39 ár. í Ársritinu birtust starfsskýrslur félagsins og lýsingar og niðurstöður þeirra tilrauna, sem gerðar voru í gróðrarstöð þess. Ná þær yfir tugi ára, og eru engar tilraunaskýrslur um jarðrækt til á íslenzku, er ná yfir svo langt árabil og eru jafnfjölþættar. Gefa skýrslur þessar Ársritinu ómetanlegt gildi, svo að hik- laust má telja það eitt merkasta sérfræðiritið um land- búnað, sem gefið hefir verið út hér á landi. En auk skýrslnanna hefir það að jafnaði flutt gagnmerkar grein- ar um landbúnað, skógrækt og náttúrufræði. Nú seinni árin eftir að félagið hætti að reka gróðrarstöðina, hefir Ársritið flutt minna af tilraunaskýrslum, en fjöldamargt ágætra ritgerða um landbúnað og vísindalegar rann- sóknir í sambandi við hann. Er það í fremstu röð ís- lenzkra búfræðirita. Nýjar kvöldvökur 1906—1962. Árið 1906 efndu nokkrir menn á Akureyri til félags- skapar um útgáfu mánaðarrits, er einkum flytti sögur og alþýðlegar fræðigreinar. Aðalmennirnir voru: Þórhall- ur Bjarnason, prentari, Hallgrímur Pétursson, bókbind- ari og Sveinn Sigurjónsson, kaupmaður. Ritið hlaut nafnið Nýjar kvöldvökur, og var síra Jónas Jónasson frá Hrafnagili ráðinn til að annast ritstjórn, en hann var þá kennari við Gagnfræðaskólann, og hafði hvatt mjög til stofnunar ritsins. Var hann síðan ritstjóri Kvöldvak- anna í 10 ár, unz hann sakir vanheilsu lét af störfum og fluttist frá Akureyri. í höndum hans urðu Nýjar kvöld- vökur harðla vinsælt rit. í hverjum árgangi var ein aðal- saga, sem hvert hefti byrjaði á, flestar voru þær eftir kunna úrvalshöfunda, en auk aðalsögunnar voru aðrar framhaldssögur og fjöldi af smásögum. Mest var þetta þýtt, og þýddi síra Jónas sjálfur fjölda sagna. Af inn- lendum sögum voru helztar Borgir eftir Jón Trausta og Úr blöðum Jóns halta eftir síra Jónas. Aðrir innlendir höfundar sem þar áttu sögur lengri og skemmri voru 392 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.