Heima er bezt - 01.11.1973, Side 17

Heima er bezt - 01.11.1973, Side 17
Jónas Rafnar, Benedikt Bjarnason, Theodór Friðriksson, Ólöf á Hlöðum og Jón Björnsson síðar ritstjóri. Síra Jónas skrifaði þar margt fræðigreina, svo sem Agrip af landnámssögu jarðarinnar og flokk, er hann nefndi Menningarþætti. En merkasta framlag hans voru þó bókmenntaþættir þeir, er hann skrifaði í næstum því hvert hefti. Var þar getið flestra íslenzkra bóka, er út komu og margra útlendra. Höfðu bókmennta-greinar síra Jónasar mikil áhrif á smekk manna og leiðbeindu þeim um bókaval, en hann greindi þar skarplega milli vondra bóka og góðra, og var ef til vill stundum full- harður í dómum, en víst er um það, að hann vann með þeim mikið og merkilegt menningarstarf. Eftir fráfall síra Jónasar fengust ýmsir við ritstjórn Kvöldvakanna. Þannig var Ingibjörg Benediktsdóttir, kennari ritstjóri þeirra um skeið, og oft mun Þórhallur prentari hafa mest annast efnissöfnun þá tíðum með að- stoð Sveinbjarnar Oddssonar prentara. Hnignaði Kvöld- vökunum mjög á þessum árum og kaupendum fækkaði. Árið 1928 keypti Þorsteinn M. Jónsson, bókaútgef- andi og skólastjóri Kvöldvökurnar og gaf hann þær út til 1956. Fyrstu árin voru þeir ritstjórar Friðrik Á. Brekkan í tvö ár, síra Friðrik J. Rafnar og Guðmundur G. Hagalín sitt árið hvor, en 1933 tók Þorsteinn sjálfur við ritstjórninni og hafði hana á hendi síðan, meðan hann gaf Nýjar kvöldvökur út. Jafnskjótt og Þorsteinn eignaðist Kvöldvökurnar tók hann að vinna að því að hefja þær aftur til sinna fyrri vinsælda, en þeim hafði hrakað mjög næstu árin á und- an eins og fyrr sagði. Tókst honum á skömmum tíma að gera þær á ný að merku riti, fjölbreyttu að efni, bæði innlendu og erlendu. Söguval var þó naumast eins gott og í tíð síra Jónasar, en meira fluttu þær nú af ýmiskon- ar þjóðlegum fróðleik, enda unni Þorsteinn mjög þeim fræðum og lagði ritinu til af þeim sjóði fræða sinna. Annars ritaði hann sjálfur fremur lítið eins og vænta mátti, svo mjög sem hann var störfum hlaðinn við kennslu, skólastjórn, búrekstur og umfangsmikla bóka- útgáfu auk margs annars. En kalla mátti að hann væri Þorsteinn M. Jónsson. margra manna maki að starfsorku auk hins ódrepandi áhuga á menningarmálum og hverju því, sem til fram- fara horfði. En margir lögðu Nýjum kvöldvökum hð. Fremstur í flokki var þó Jónas Rafnar yfirlæknir, sem bæði frumsamdi og þýddi sögur og samdi margar fróð- leiksgreinar. Á 50 ára afmæh ritsins getur Þorsteinn um 40 manna, sem lagt höfðu Kvöldvökunum til efni með- an hann gaf þær út, eru í þeim hópi auk áðurnefndra ritstjóra margt þjóðkunnra manna og vel ritfærra. Má í þeim hópi nefna Helga Valtýsson, Guðmund og Jó- hann Frímann, Friðgeir H. Berg, síra Benjamín Krist- jánsson auk margra annarra. Þegar Þorsteinn M. Jónsson fluttist frá Akureyri eignaðist nýtt félag Kvöldvökurnar. Aðalframkvæmda- maður þess var Kristján Jónsson, þá bæjarfógetafull- trúi. Ritnefnd annaðist þá efni og ritstjórn. í henni voru Jónas Rafnar, yfirlæknir, Gísh Jónsson, menntaskóla- kennari, Jón Gíslason, fulltrúi og Einar Bjarnason síð- ar prófessor. Voru Kvöldvökurnar nú einkum helgaðar íslenzkri mannfræði og ættfræði, og fluttu þær margt gagnmerkra greina um þau efni. Minna var nú af sög- um og nær ekkert þýtt efni. Mikið var af myndum. En þótt kalla mætti að Kvöldvökurnar flyttu eingöngu úr- valsefni tókst hinum nýju útgefendum ekki að halda þeim úti nema í sjö ár. Við árslok 1962 hættu þær að koma út og höfðu þá komið út 55 árgangar. Verða Nýjar Kvöldvökur ætíð taldar meðal hinna merkustu Heima er bezt 393

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.