Heima er bezt - 01.11.1973, Page 27

Heima er bezt - 01.11.1973, Page 27
KVEÐÉG mér til hugarhœgðar GUÐBJÖRG ÁSGEIRSDÓTTIR er fædd á Galtarhrygg x Heydal í Reykjafjarðar- hreppi 26. marz 1895. Guðbjörg hefur aðallega stundað sveitastörf um ævina, og hefur haft mikið yndi af garðrækt, blóma og matjurta. Þá hefur hún og haft mikið yndi af dýrum, enkum hestum, sem hún batt við mikla tryggð suma hverja. BLÓMIN MÍN Ætíð hug og hjarta kætir, er horfi ég á blómaskraut, félagarnir mínir mætir minni eru á lífsins braut. Enginn tjá kann yndislegar, Almættisins töfra-hönd. Þau oss beina vel til vegar, veginn inn á sólarlönd. HEILRÆÐI Ef af raun á einhvern hátt er þitt hjarta skorið, renndu sjón í sólarátt og syngdu um bjarta vorið. Eitt sinn er sólin sendi höfundi geisla sína í gegnum glugga. Ertu að gá í gluggann minn glóeyg fögur rjóð á kinn. Yndislega ylinn þinn um mig lykja nú ég finn. Lof sé dýrðar Drottinn þér dásemdir sem allar lér, lánaðu oss ljós á braut, líknir sendu í hverri þraut. TINNA HRYSSA Vinsemd þín var heil og hrein hjartað nærði gleði. Úr augum þínum ástúð skein sem yljaði mínu geði. V ORMORGUNN Mér er unun úti að ganga, er árdags-sólin vermir grund. Meður rauða rósavanga rís hún upp af næturblund. SUNGIÐ Á ÚTISAMKOiMU VIÐ DJÚP, (sem haldin var á fögrum eyrum, sem liggja fram á milli fjallanna frá ísa- fjarðarbotni, sem er innsti fjörður við Isafjarðardjúp. Var þar samankomxnn fjöldi fólks úr Nauteyrar- og Reykja- fjarðarhreppi). Hér komum saman konur, menn með kæti f jör og blíðu, en aftur skilja eigum senn, þó angri höfnum stríðu. Lyftum vorum huga hátt, hefjum söng og gleði, uns sólin blessuð sígur lágt, að sínum hvílubeði. Um sumardag í sæld og ró í sveit er gott að dvelja, er fuglar syngja í fríðum skóg og fegurst ljóðin velja. Lofum allir Guð sem gaf, gleymum Drottni eigi, en þökkum honum alhug af á okkar gleðidegi. AÐ STYTTA STUNDINA Létt hefir það lundina að lesa fróðleiks-sögu. Stytt hefir líka stundina, að stíla litla bögu. STÖKUR Hrynja föll og hendingar hratt um völlinn iðunnar, gnötra fjöll og gnýpurnar, geysast sköllin óðsnilldar. Við ófriði reisum rönd, ræktum hjartans gaman, látum kærleiks blómsturbönd, binda okkur saman. Heima er bezt 403

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.