Heima er bezt - 01.08.1974, Page 6

Heima er bezt - 01.08.1974, Page 6
Verkstœði Karls Hanssonar. Myndin er tekin árið 1908. Frá vinstri: Jón Lúðvígsson, Teigarhorni, Berufirði; Karl Hansson, Jóhann Ólafsson, Ólafur Agustsson og Jón Eggertsson, Krossanesi. tímans er farið í sveinspróf. Úttektarmenn, eins og próf- nefndarmenn voru þá nefndir, nefna sveinsstykki Ólafs salonborð, allt úr mahoní eða hnotu. Sveinsstykki Jó- hanns nefndist dömuskrifborð, sömuleiðis úr eðlum viði. Hinir nýbökuðu sveinar mega þó ekki eiga sveins- stykkin eins og nú er alsiða og þykir sjálfsagt, heldur voru þau söluvarningur til viðskiptavina. Báðir þessir húsgagnasveinar reyndu síðar á ævinni að hafa upp á þessum prófstykkjum til eignar. Stykki Jóhanns kom í leitirnar fyrir atbeina Ólafs, — en Ólafi tókst ekki að eignast salonborðið. Það mun hafa orðið eldsvoða að bráð. Laun Ólafs fyrir allan námstímann voru 150 krónur og eitthvað af handverkfærum, sem Karl Hansson lét upp í kaupið. Karl Hansson hverfur úr bænum og er úr þessari sögu. Hinn ungi sveinn hverfur nú galvaskur út í lífsbar- áttuna. Ekki stundar hann eingöngu smíðar til að byrja með, heldur ýmislega vinnu sem gafst. Sá tími kemur, að hann fær meistararéttindi og þar með réttinn til að taka nema. Þá hugsar hann sér til hreyfings í iðn sinni og hefur hug á að koma undir sig fótunum, enda fengið sér lífsförunaut, bráðmyndarlega stúlku og fermingar- systur sína, Rannveigu Þórarinsdóttur. Fyrst kaupir hann húsið Grundargötu 3, síðan húsið í Grundar- götu 6 og ræðst í að stækka það og koma ser þar upp verkstæði. Hann tekur nema, Hjalta Sigurðsson, sem var lítið eitt eldri en meistarinn. Hjalti varð síðar kunn- ur smiður í þessum bæ. Annars kem ég síðar að þeim fjölda mætra manna, sem lærðu smíðar hjá Ólafi Ágústs- syni. £g held það séu engar ýkjur þótt ég segi, að Ól- afur Ágústsson sé lærifaðir velflestra húsgagna- og inn- réttingasmiða á Akureyri í dag. Smíðarekstri Ólafs fleygir fram, og brátt hefur hann sprengt utan af sér litla verkstæðið í Grundargötu 6. Þá er farið að huga að stórræðum. Hann kaupir eignar- lóðir við Grundargötu og Strandgötu. Á lóðinni við Strandgötu mátti enn hjá brunarústir Hótels Oddeyrar og Verslunarinnar Akureyrar, sem brunnu til kaldra kola í frægum bruna 18. okt. 1908. Á þessum bruna- rústum reisir hann hið veglega og stórglæsilega íbúðar- hús við Strandgötu 33 og litlu norðar verkstæðisbygg- ingu, allt úr steinsteypu. Þetta var árið 1924. Við verk- stæðið hefur síðan verið byggt, en íbúðarhúsið er enn eins og það var byggt í upphafi. Þetta var feykimikil fjárfesting, en verður upphafið af hinni landskunnu húsgagna- og innréttingasmíði Ólafs Ágústssonar. Vildi einhver fá sér vönduð húsgögn var leitað til Ólafs. Hann leitast líka við að hafa valinn við í smíðinni. Um tíma flytur hann sjálfur inn gufuþurrkaðan góðvið frá Danmörku, auk ýmislegra efna til frágangs húsgagna, meðan sá innflutningur var hagstæður og leyfilegur. 270 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.