Heima er bezt - 01.08.1974, Blaðsíða 23
Qrjótgarh
urinn mi
vih Cuzco í
Oft miklumst við af tækni nútímans
og getu hennar til risavaxinna verk-
efna, t. d. í byggingum. En hversu
mikið megum við þá ekki undrast
þegar við rekumst á hliðstæð mann-
virki úr fortíðinni, reist af fólki sem
ekki þekkti einu sinni hjólið sem
verið hefur undirstaða vélamenning-
ar og flutninga um langan aldur.
Fyrir rúmum 400 árum þegar spán-
verjar voru að rassakastast í nýja
heiminum, Ameríku, rákust þeir á
indíánaþjóðflokk, inkana, sem virð-
ist hafa getað leyst hin örðugustu
tækniverkefni á einhvern dularfull-
an máta sem enginn hefur getað
skýrt enn þann dag í dag. Á getgát-
urnar hefur heldur ekki skort, m. a.
þær að verur hafi komið frá öðrum
hnöttum og reist þessi mannvirki
með tækni sem við þekkjum auðvit-
að ekki, eða að eins konar kýklópar
hafi reist þau. I grísku goðafræðinni
voru kýklóparnir risar með eitt auga
í miðju enni.
Höfuðborg inkanna hét Cuzco.
Hún er í Perú, vesturhlíðum Andes-
fjalla og er í 3380 metra hæð yfir
sjávarmáli. Þegar spánverjar ruddust
þarna inn bjuggu þar 200 þúsundir
manna og frá henni var hinu merki-
lega inkaríki stjórnað. Sögn hermir
að frá eyjunni Titicaca hafi stofn-
endur hennar komið af því þeir
vildu finna „miðpúnkt vísdóms
mannltyns“. Sólguðinn gaf þeim
gullinn græðling til að hafa með á
vegfcrð sinni og honum fylgdu þau
boð að þeir myndu fá ósk sína upp-
fyllta þar sem þessi græðlingur festi
rætur. Og undrið skeði í hinum
breiða dal við ána Cuzco, nákvæm-
lega á þeim stað þar sem „nafli
RITSTJÓRI EIRÍKUR EIRÍKSSON
Perú
heimsins“, höfuðborgin Cuzco reis
af grunni.
Þessi borg er eitt af undrum ver-
aldar. Hún er reist á stöllum í hlíð-
Undur
mannlegrar
getu
Hlnti hins mikla virkismúrs, sem ink-
arnir byggðn umhverfis Cuzco.
Heima er bezt 287