Heima er bezt - 01.08.1974, Blaðsíða 28
Yfir heim eða himin
hvort sem hugar þín önd,
skreyta fossar og fjallshlíð
öll þín framtíðarlönd!
Fjarst í eilífðar útsæ
vakir eylendan þín:
Nóttlaus voraldar veröld
þar sem víðsýnið skín.
Það er óskaland íslenskt
sem að yfir þú býr —
aðeins blómgróin björgin,
sérhver bald-jökull hlýr,
frænka eldfjalls og íshafs,
sifji árfoss og hvers!
dóttir langholts og lyngmós
sonur landvers og skers!
Fyrir nokkru birti ég á þessum síðum þýðingu Sig.
Júl. Jóh. á hinum kunna, írska söngtexta Danny Boy
(Londonderry Air). Nú hefur Snæbjörn Jónsson fyrrv.
bóksali, sem búsettur er á Englandi, verið svo vinsam-
legur að senda þættinum þýðingu eftir annan Vestur-
Islending, Ragnar Stefánsson. Ragnar Stefánsson var
Húnvetningur f. að Lækjarkoti í Víðidal 12. ág. 1888,
d. 21. mars 1960. Fluttist til Vesturheims 1913 og átti
síðan lengstum heima í Winnipeg. Tók þar mikinn þátt
í leikstarfsemi og birti ljóð í blöðum og tímaritum.
(Vestur-íslenzkar æviskrár I. bls. 315). Snæbjörn getur
þess, að þýðandi telji þýðingu sína lauslega. En hvað
um það. Snæbirni þakka ég vinsemdina og nú geta mínir
söngfuglar sungið þetta vinsæla lag með enn einum
ágætum texta.
DANNY BOY
Ó, Danni minn, ég heyri hornin kalla
í hverjum dal og upp í fjallahlíð.
Það haustar að og hinstu blómin falla,
þú hlaust að fara’, en þín ég róleg bíð.
Og jafnt hvort sumarsólin gyllir glugga
eða grimmur vetur hjúpar foldarstig,
þá verð ég hér í skini eða skugga
og skal þín bíða; ó, Danni minn, ég elska þig.
En ef að seinkar afturkomu þinni,
og ég verð dáin, sem að líklegt er,
þá kemur þú að köldu grafar inni
og krýpur hljótt og biður fyrir mér.
Og fótatak þitt hljóðleg mun ég heyra,
þá hlýja og birta’ um grafarmyrkrið skín.
Þú hvíslar Ijúfri ástarkveðju’ í eyra,
og ég mun sofa í ró uns kemur þú til mín.
Fleiri ljóð birtast þá ekki að sinni. — Kær kveðja.
E. E.
Hannes Hannesson, Melbreið, skráði:
Skyrtan á Purtharsteini
//
Ikaflanum hér á undan gat ég um af hvaða ástæðu,
að Þuríðarsteinn hefði hlotið nafn sitt.* En steinn
þessi var ekki einasta frægur fyrir það að hafa
bjargað lífi Þuríðar með mikilleik sínum, heldur og
líka fyrir það, að þar átti að búa huldufólk. Heyrði ég
í æsku oft um þetta talað, og þóttust ýmsir verða varir
ókenndra manna á þessum slóðum. Búinn er ég að
gleyma þeim flestum en hér skal þó sögð ein.
Nokkrum árum fyrir síðustu aldamót bjó á Illuga-
stöðum bóndi sá, er Magnús hét Ásmundsson, dáinn
1883. Hann var faðir Árna, föður Ásmundar á Mallandi
á Skaga. Þegar þessi saga gerðist, var Magnús farinn að
eldast og fór þá oft seinna út til sláttar en vinnumenn
hans, sérstaklega síðari hluta sumars, þegar farið var að
heyja upp í svokölluðu Fjalli, en þar eru engjaslægjur
Ulugastaða að mestu.
Einn dag, síðari hluta sumars, fer Magnús heimanað
og ætlar upp í svokallað Miðengi, til þess að hjálpa fólki
sínu við heyþurrkun. Leið hans lá rétt hjá Þuríðarsteini.
Þegar hann kemur að steininum, sér hann, að á hann er
breidd karlmannsskyrta. Var hún nýleg og steinlituð,
eins og það var kallað í þá daga.
Magnús undraði þetta. Hélt þó, að hér væri allt með
felldu, og einhver piltanna hefði skilið hana eftir um
morguninn. Var hann að hugsa um að taka hana, en
gerði það þó ekki. Þegar Magnús kom til fólksins,
spurði hann eftir, hvort einhver piltanna hefði skihð
eftir skyrtuna á steininum. En þeir kváðu það ekki vera,
voru allir í sínum ytri skyrtum. Þegar fólkið fór heim
um kvöldið, gekk það að steininum, en þar var þá enga
skyrtu að finna.
Ath. skrásetjara.
Sögn Ólafar Pétursdóttur að Berghyl, en hún var að
nokkru fóstruð af Magnúsi. Þess má geta, að Magnús
var maður fáorður, greindur og gætinn.
(Héraðsskjalasafn Skagfirðinga — Hsk.).
* Sbr. frásögn um Þuríðarstein (7. tbl. HEB, bls. 252).
BRÉFASKIPTI
Björk Gunnlaugsdóttir, Selási 16. Egilsstöðum, óskar eftir bréfa-
skiptum við stráka 14—16 ára.
Greta Sigrún Gunnlaugsdóttir, Selási 16, Egilsstöðum, óskar
eftir bréfaskiptum við stelpur og stráka á aldrinum 12—14 ára.
Leifur Þórarinsson, Másseli, Hlíðarhreppi, N.-Múlasýslu, óskar
eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 25—30 ára.
Páll Þór Bergsson, Háaleitisbraut 16, Reykjavík, óskar eftir bréfa-
skiptum við stúlkur á aldrinum 18—25 ára.
292 Heima er bezt