Heima er bezt - 01.08.1974, Blaðsíða 8
nokkurn veginn í réttri tímaröð. Hór verða þeir ekki
nefndir, sem byrjuðu smíðanámið en hættu svo af ein-
hverjum ástæðum, heldur eingöngu þeir, sem luku
sveinsprófi:
Hjalti Sigurðsson
Magnús Bjarnason
Þórður Jóhannsson
Kristján Aðalsteinsson
Ágúst Jónsson
Guðmundur Frímann
Friðgeir Sigurbjörnsson
Magnús Albertsson
Adam Magnússon
Gísli Kristinsson
Stefán Þórarinsson
Jón Oddsson
Kristján Stefánsson
Ármann Tr. Magnússon
Benedikt Hermannsson
Ágúst Ólafsson
Héðinn Friðriksson
Rögnvaldur Árnason
Reynir Ragnarsson
Konráð Árnason
Níels Hansson
Sveinn Tryggvason
Víkingur Antonsson
Jón Hólmgeirsson
Hörður Tuliníus
Tryggvi Hjaltason
Sverrir Pálmason
Garðar Karlsson
Jakob Jónasson
Ólafur Ágústsson yngri
Hákon Sigurðsson
Allir eru þessir menn þekktir af iðn sinni og margir
starfandi smiðir í dag. Nokkrir þeirra hafa eflaust haft
smíðahæfileikann í sér, en ekki hafa þeir versnað við
tiisögn Ólafs. Einn af þessum mönnum, Magnús Al-
bertsson vann hjá Ólafi frá námstíma á unga aldri og til
dauðadags fyrir örfáum árum. Magnús var þá orðinn
nokkuð við aldur. Segir þetta sína sögu.
1. júlí 1916 gengu þau Rannveig Þórarinsdóttir og
Ólafur Ágústsson í hjónaband. Foreldrar hennar voru
Þórarinn Jónas Jónasson, sonur Sigluvíkur-Jónasar, og
Ólöf Þorsteinsdóttir hreppstjóra, Öxnafelli. Rannveig
er fædd 28. júlí 1891.
Bjargey
Pétursdóttir.
Foreldrar Rannveigar eignuðust tíu börn, sem sex
náðu fullorðinsaldri. Þau sem létust á unga aldri voru:
Sigfús, Margrét (eldri), Aðalsteinn og Vilfríður. —
Þau sem upp komust voru:
Jón Þór málari, Jónas Þór verksmiðjustjóri, Þorsteinn
Thorlacius bóksali og síðar prentsmiðjustjóri, Margrét
Þór, gift Agli Jóhannssyni skipstjóra og búsett á Akur-
eyri, Rannveig, sem hér um ræðir, og Vilhjálmur Þór
bankastjóri, sem var yngstur systkinanna. Állir þessir
bræður urðu þjóðkunnir menn hver á sínu sviði. Syst-
urnar, Margrét og Rannveig, eru nú einar eftir af syst-
kinahópnum.
Rannveig og Ólafur cignuðust tvo drengi. Hinn eldri
var Þórarinn, sem var fæddur 25. september 1919, en
lést aðeins 24 ára að aldri þann 29. apríl 1943. Að þess-
um prúða, glaðværa og myndarlega pilti var mikill
harmur kveðinn af öllum, sem hann þekktu, en þó mest
af unnustu hans, foreldrum og bróður. Mér er til efs,
að þau sár séu gróin enn í dag, þótt stundum sé sagt, að
tíminn iækni öll sár. Heitmey Þórarins, Bjargey Péturs-
dóttir, lést svo 15 árum eftir lát unnustans eftir þung-
bær veikindi. Bjargey var fædd 30. ágúst 1918. Þórar-
inn var við nám í Menntaskólanum á Akureyri, kom-
inn fast að stúdentsprófi, þegar hið sviplega fráfall bar
að. Sigurður Guðmundsson skólameistari minntist þessa
nemenda síns á Sal á útfarardegi, og eru þau minningar-
orð prentuð í bók hans Heiðnar hugvekjur og manna-
minni. Allir, sem til þekktu, geta tekið undir minning-
arorð hins merka skólamanns um hinn mannvæna svein.
Yngri sonurinn er Ágúst, fæddur 24. maí 1924. Ágúst
er húsgagnasmíðameistari að iðn. Hann er kvæntur
Lilju Sigurðardóttur, ættaðri úr Skagafirði. Þau eiga
fjögur börn: Rannveigu, Ólaf, Þórarin og Ingu Sigríði,
272 Heima er bezt