Heima er bezt - 01.08.1974, Síða 13

Heima er bezt - 01.08.1974, Síða 13
hafa í oss tangarhald sem mest þeir geta, en það erum vér sjálfir, sem verðum að sýna þeim, að þeir geti ekki haldið okkur öðru vísi, en okkur semur til, og þetta vona ég að landar okkar læri smásaman, hvort sem ég lifi lengur eða skemur. Allt hvað við fáum frá Dönum af þess konar tagi, verðum við að herja út sjálfir. Það væri óskandi að ungir menntaðir menn gæti gefið sig í þjónustu lands vors, til að fylgja málum þess, og að þeir færi um kring, og héldi fundi til að skýra frá þjóðmál- um vorum, og halda þeim í réttri stefnu. Finnið þér mörg handrit eftir sr. Björn sáluga í Tröllatungu? Hann átti margt. Rask talar um í formála Snorra-Eddu að drengur í Hrútafirði hafi átt Eddu-bók merkilega, sem Rask fékk ekki á ferð sinni. Hún mun nú ekki spyrjast upp, vænti ég? Forlátið mér þennan flýtismiða og verið ætíð sælir. Yðar einlægur vin. Jón Sigurðsson“. Jón til Sighvats: „Khöfn, 30/4 1871. Háttvirti kæri vin: Kærar þakkir fyrir yðar góða bréf 10. oktbr. í haust, og þar meðfylgjandi æfi nafna míns, Jóns Sigurðssonar. Ég skal sjá um að hún glatist ekki, og heilsið honum kærlega með ástarþökkum, þó yðar sé samt mest fyrir- höfnin. Þér eruð reiður við kaupmennina, og kennið stjórn- inni um að skemmd vara sé flutt, en hér eru önniir ráð við. Allur almúgi á að heimta rannsókn og slcoðun sýslu- manna undir eins og finnst skemmd vara. Skoðunar- gjörðin verður auglýst í blöðum og kaupmanni stefnt til skaðabóta. Kvartanir heima á palli duga elckert. Með þessu móti vann Skúli fógeti mjölbæturnar á sinni tíð. Þá var líka beinlínis steypt niður skemmda mjölinu bótalaust. En hér verður að vera samheldni, svo ekki sé allir að kalla hver á annan, og á Alþing og stjórnina, en gjöra ekkert sjálfir, hvor um sig, sem gæti þó svo mikið og margt. Þér segið mér að Strandamenn séu reiðir Torfa# fyrir spítalamálið. Það ætti þeir ekki að vera, því Torfi er svo góður þingmaður, að þeir fá ekki annan betri að mínu áliti. Það er svo langt frá hann vanti menntun til að vita hvað gjöra þarf, og til að gjöra grein fyrir vilja sínum og atkvæði, og hann er viss og áreiðanlegur, sem er mest vert. Það er ég hreint hlessa á, hvað menn láta um þetta spítalagjald. Þetta fer þó í okkar sjóð, en ekki annara, og þó þegja þeir yfir tunnum gulls á ári, sem renna til Dana, en fáein þúsund sem þeir sjálfir hafa not af ætla að rífa þá hreint. Okkur vantar þó lækna, sjúkrahús Og margt fleira til læknaskipunar, og hvað er þó goldið sé svo sem 16 sk. af hverju hundraði fiska eða 8 sk. af * Torfi Einarsson á Kleifum var þingmaður Strandamanna 1867-77. tunnu lifrar! Ég skyldi þessa guði ef ég fengi 1000 til hlutar, að gjalda svo sem 10 mörk. — Og yrði nú gjald- ið svo að það þætti of hátt, þá má lækka það, og þar er Torfi fús að leggja til með. Það væri gaman að sjá yður á Þingvallafundi í vor, og svo í Reykjavík í sumar, en það mun vera yður örðugt, kostnaðar vegna, sem von er. Það er víst að mér þætti gaman að þér gætið verið hér, en því er miður að kostn- aðurinn til þess verður líklega eins of mikill. Ættartölu- bækur eru hér nógar og margt annað, en hvergi hafið þér samt betri ættartölusafn nú en í Rvík, í stiftsbóka- safninu og hjá Jóni Péturssyni, og svo hjá Hólmfríði, konu Jóns Guðmundssonar. Ættartölusafn Steingríms biskups var án efa það bezta, en nú er það á eftir tím- anum. Kostnaður hér yrði á að gizka svo sem 20 rd, um mánuðinn, ekki stórt meira til að lifa sparlega og ef þess þyrfti ekki að kaupa föt. En það er svo lítið sem þér gætuð unnið yður inn með skriftum, þó þér hafið alla fjársjóði sagnaritara Gísla Konráðssonar og fleira. Þér segið það alla daga satt að útréttingar Bókmennta- félagsins ganga mjög báglega, en hvað skal segja? Kringumstæðurnar hjá oss eru svo, að hér er ekki gott við að ráða, nema ef allir væri eins og þeir ætti að vera, og það er ekki. Skírnir ætti að koma með fyrsta skipi en þegar höfundurinn er ekki búinn, prentarinn ekki bú- inn, þá er Skírnir heldur ekki búinn. Þegar höfundur fatlast, stendur maður uppi eins og þvara. Og þó nú að þetta gangi, þá er að ná í skip, þá er undir skilum kaup- manna, skilum umboðsmanna, skilum félagsmanna. Með öllu þessu getið þér þó huggað yður við það að félagið hefir nú 3000 rd. í tekjur á ári, þar sem það hafði varla 800 rd. þegar ég tók við, og það prentar nú 60 arkir á sama tíma sem það prentaði 6. Okkur vantar mest til- lagsskil félagsmanna og styrk. Bækurnar í fyrra komu á Skagaströnd seint (í ágúst héðan) því er ekki von þér hafið fengið þær í oktbr. — Síra Sveinbjörn hefir sent félaginu reiðilega þess peninga, en hann á bágt, eins og við, þegar svo óheppilega fer með sendingar. Líklega væri bezt að senda á Isafjörð ykkar bækúr. Við verð- um að vera þolinmóðir, þegar við gerum hvað við get- um, og það þykist ég gera í félagsins sporum. Það væri vænt að fá ferðasögu Árna Magnússonar og um rán Tyrkja á Berufirði 1627 og annál Kláusar. Ég skal reyna að útvega yður eitthvað aftur, en þér eruð ekki léttur í spurningum, því ekki get ég útvegað yður að svo komnu það sem þér óskið af árbókum og Sturl- ungu. Sálmasafn það sem þér senduð mér í haust með hendi síra Markúsar Eyjólfssonar, sem var á Söndum. Bókin frá 1707 er hið svokallaða Lesrím Jóns bps. Árna- sonar. Hvað ég get útvegað vður skal ég reyna, en hripið það upp á seðil sér sem ég geti gevmt. Kannski ég geti sent eitthvað til ísafjarðar í vor. Verið ástsamlega kvaddur, yðar skuldbundinn vin, Jón Sigurðsson11. Heitna er bezt 277

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.