Heima er bezt - 01.08.1974, Side 22

Heima er bezt - 01.08.1974, Side 22
allmikið eftir stórhríðarnar undanfarið, stórir skaflar, en rifið af á milli. Þegar við komum nokkuð vestur fyrir túngarð í Höfn, um það bil er síðar var byggt grasbýlið Lindarbrekka, lagði Valdimar af sér byrðina, °g opnaði poka sinn, sem reyndist hafa að geyma þrjár vínflöskur í strámottuhulstrum. Hann tók tappann úr einni þeirra, og fékk sér góðan teig. Hann bauð mér að smakka á, og ég drap í það tungu. Hann spurði hversu mér líkaði bragðið, og lét ég vel yfir að það væri bara gott. Hann sagði það ekki vera eins með sig. Sér þætti vínbragðið alltaf vont, fyrst í stað, og þó langaði sig alltaf í þetta, því áhrifin væri svo dásamleg, og þess- vegna hálf neyddi hann þessu ofan í sig, til að byrja með. Hann vissi vel og skildi, að áfengisneyslan væri sinn mikli löstur og óhamingja, og hann vildi ráðleggja mér og öðrum ungum mönnum, að forðast víndrykkju, því þar væri hægara í að komast en úr að sleppa. Jón gamli í Höfn vissi hvað hann söng, þegar hann sagði mér, að einhver mundi fljótlega koma frá Bakka. Það mun hafa verið venja, eftir komu strandferðaskipsins. Brennivín var þá enn algeng söluvara í verslunum. Valdimar hreppstjóri var vel gefinn maður og mikið góðmenni, en nokkuð vínhneigður. Hann varð ekki gamall maður. Um kvöldið, nokkru eftir að við Valdi- mar höfðum náð húsum á Bakka, kom þar annar gestur, sem þá var lítið þekktur utan sinnar heimasveitar, en varð síðar á ævinni þjóðkunnur, og meira metinn en hann sjálfur taldi sér hæfa. Þetta var unglingspiltur frá Miðfjarðarnes-Seli þá, og hét Magnús Stefánsson, en tók sér síðar skáld-heitið Örn Arnarson, og er þekktast- ur hjá þjóð sinni undir því nafni. Hann var í vinfengi við unga fólkið á Bakka, börn Valdimars og Þorbjargar, og var nú að koma í heimsókn eftir nokkurra mánaða burtveru úr sveitinni, en hann var við nám í unglinga- skóla Magnúsar á Grund í Eyjafirði um veturinn. Hann hafði náð heim í góðu tíðinni fyrir sumarmálin, rétt áður en áfellið hófst, sem áður er lýst. Það var góður gleðskapur þarna á Bakka, meðal unga fólksins, og við Magnús sátum þarna í góðu yfirlæti tvær nætur og dag- inn á milli þeirra og leiddist ekki. Eftir hádegið næsta dag, lögðum við Magnús af stað frá Bakka, norður Ströndina, og lagði Magnús á bak sér fatapoka minn. Magnús réði ferðinni, sem mér eldri og reyndari mað- ur, og þræddum við sem mest sjávarbakkana, því þar var meira blásið af en annarsstaðar, og því léttari færð. Þó urðu á vegi okkar margir svo stórir skaflar, að við botnuðum þá ekki og urðum að slcríða á fjórum yfir þá. Við vorum, að mig minnir, um 7 klukkustundir á leiðinni norður að Seli, og komum þó hvergi við til að hvíla okkur, og mun þetta þó vart vera mikið yfir 15 km vegalengd. £g gisti í Seli um nóttina og daginn eftir, annan miðvikudag í sumri, fylgdi Þórarinn Árnason bóndi í Seli mér inn í Kverkártungu. Var ég þá heilu og höldnu kominn og vel móttekinn í foreldrahús, eftir 12 daga ferð frá Ljótsstöðum í Vopnafirði og eftir minn fyrsta fjarvistarvetur þaðan. Þegar Loðmfirðingar . . . Framhald af bls. 281 ------------------------------ maðurinn mun hafa fengið hausinn, að öðru leyti en því, að Árni fékk tennurnar. Þess má geta, að Árni átti tennurnar nokkur ár, en mun svo hafa selt þær til Seyðis- fjarðar fyrir 15 krónur! En tennurnar eru taldar eitt af því verðmætasta af rostungnum. Eru margir listmunir og skrautmunir gerðir úr rostungstönnum, engu síður en úr fílstönnum. Eins og að líkum lætur, þar sem um Svo afar fágæta skepnu var að ræða, vissu menn ekki almennilega, hvernig bezt væri að hagnýta sér hana. Var því upp- lýsinga um það leitað til Seyðisfjarðar. Varð árangur þeirra upplýsinga, sem þar fengust til þess, að sumt af kjötinu var saltað, sumt reykt, en hreifarnir voru settir í sýru og þóttu mjög góður matur, þegar þeir, vel súrir voru bornir á borð, aðeins feitari en selshreifar, sem enn í dag eru víða verkaðir á sama hátt. Húðin af rostungnum var að mestu notuð í skó. En þar sem hún var svona þykk, varð að kljúfa hana með því að sltera holdrosuna burtu, og var henni víst fleygt að mestu. Skórnir þóttu sérstaklega endingargóðir. VI. Það munu nú vera nokkrir tugir ára síðan rostungur hefur veiðst hér á landi. Fyrr á öldum mun hafa verið talsvert af honum hér. En á síðari árum hefur verið svo stórkostlega herjað á þennan sérstæða risa norðursins, að fágætt er, að hann sjáist nálægt landinu. Það voru aðallega vígtennturnar tvær, sem lokkaði menn til að veiða hann, þar sem þær hafa alltaf verið metnar háu verði. Á þessari öld hafa aðeins örfáir rostungar verið lagðir að velli hér við land. Það þarf því engan að undra, þó að ekki þekktu allir slíka skepnu þegar í stað. Auk þess var fræðsla í almennum skólum ekki komin í fastar skorður fyrr en nokkru eftir aldamót. Dýrafræðinni var ekki ætlað mikið rúm í kennsluskránni. Atburður, sem gerðist fyrir meir en hálfri öld virðist orðinn harla fjarlægur. Það hefur fyrnt yfir fjöldann allan af merkum atburðum á styttri tíma en þeim. Með því að rita niður framanskráða frásögn, hef ég meðal annars viljað geyma frá glötun minninguna um risann norðan úr Dumbshafi, sem lagður var að velli fyrir rúmlega hálfri öld sólbjartan sumardag á klöpp- unum hjá Neshjáleigu í Loðmundarfirði. Heimildir: Handrit Halldórs Pálssonar frá Nesi (þ. á. m. frá- sögn Stefáns Þorsteinssonar); „Heima er bezt“, marz 1960; „Ævikjör og aldarfar", eftir Óscar Clausen 1949. Ennfremur kirkjubækur og munnlegar upplýsingar. 286 Herma er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.