Heima er bezt - 01.08.1974, Page 25

Heima er bezt - 01.08.1974, Page 25
sínum, en líflét eigi að síður fanga sinn, Atahualpa inkakonung. Agirnd hinna spönsku ævintýra- manna var nú vakin fyrir alvöru, og ári síðar tókst þeim að brjótast inn í Cuzco, höfuðborg inkanna, þar sem þeir rændu og rupluðu að vild sinni. Örvæntingarfull vörn inkanna leiddi til algerrar eyðileggingar þessa merka staðar. Rústir kastalaborgar- innar stóðu aðeins eftir. Sagt er að síðustu verjendur hennar hafi kastað sér frarn af þverhníptum hamra- veggjum fremur en falla í hendur sigurvegaranna. Cuzco var skrautleg borg. „Garð- ur gleðinnar“ var umlukinn stærðar- innar hofurn, þar sem prestar og að- all inkanna bjuggu. Sólhofið var mesti helgidómur þessarar borgar og var það reist á 25 rnetra háum stalli. Sólguðinn stóð í miðjum forsal musterins og staður hans var þannig valinn, að um leið og sólin hóf sig upp yfir sjóndeildarhring söfnuðust geislar hennar saman á stórri gullinni skífu, endurköstuðust síðan á gim- steinum prýddan sólguðinn, sem þá var allur baðaður í glitrandi geisla- flúri. Við fótstall hans hvíldu djásn- um prýddar múmíur inkahöfðinga. Tólf stórir burðarvasar úr skíra silfri geymdu hið helga korn. Sólhofinu var svo seinna breytt í dómíníkana- klaustur. Þessi merkilega borg hafði og að gevma skrautgarða, sem hófu sig í hæðir stall af stalli. Höggmyndir þessara garða voru að sögn úr skíra gulli og garðáhöld gæslumanna áttu að vera úr silfri, annað var ekki við hæfi. í dag er Cuzco 65 þúsund manna borg, og í stað sólhofs inkaguðsins eru þar spánskar kirkjur og klaustur. Þessi forna borg, „nafli heimsins“, freistar þess enn að lifa á fornri frægð, þótt það gangi illa. (Þýtt og endursagt frá ýmsum heimildum). E. E. Efri myncL: Hluti kastalaborgarinnar miklu. Nú eins kornr fornleifasafn. Neðri mynd: Enn einn hluti hins rammgerða kastalamúrs. Sjáið stærð steina.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.