Heima er bezt - 01.08.1974, Page 26

Heima er bezt - 01.08.1974, Page 26
DAGURLAGA^tðSsttÓf* Steingrímur Thorsteinsson hlaut óvanalegar vinsældir fyrir kvæði sín meðal samferðamanna. Oftar en hitt hafa skáld ekki fengið almenna viðurkenningu fyrr en þau eru öll. Skjótar vinsældir Steingríms má að nokkru rekja til þess að fjöldi ljóða hans barst út um byggðir landsins undir fallegum lögum, sem sungin voru þar sem einhver sönggleði ríkti. Ég er ekki í minnsta vafa að mörg skáldin óskuðu þess að kvæði þeirra flygju út á vængjum söngsins. A. m. k. harmaði Jónas Hallgríms- son það á sínum tíma að Dalvísur og Sláttuvísur skyldu ekki eiga sér „lög til að kveða þess konar vísur undir, svona komast þær aldrei inn hjá alþýðu,“ skrifar hann við handrit sitt af kvæðunum. Nú er búið að bæta úr þessu og Jónas án efa glaður og eftirlifendur enn ánægð- ari að geta sungið þessar ljóðaperlur. Ég hef heyrt þá kenningu að ljóðið glati nokkru af inntaki sínu við söng. Hugboð hef ég um hvað við sé átt; Ijóð sé lesmál hins kyrra og íhugula hugar og inntak þess hverfi að nokkru þegar kyrjað sé fullum hálsi undir lagi. Eitthvað kann að vera til í þessari skoðun, með þeim varnagla þó að ekki sé sama hvernig sungið er. Samt sem áður vildi ég óska þess að fleiri lög væru til við urmul fallegra kvæða, ekki eingöngu góðskáldanna heldur hins stóra hóps sem snert hefur streng í sálu, kannske með einu Ijóði af mörgum tilraunum. En ég byrjaði þetta rabb með því að tala um Steingrím Thorsteinsson og því ætla ég að uppfylla ósk með kvæði eftir hann við fallegt lag vesturíslendingsins Steingríms K. Hall. Ljóð þetta heyrum við stundum sungið sem dúett í útvarpinu af þeim ágætu söngvurum Jóhanni Konráðssyni og Kristni Þorsteinssyni. ÁSTARSÆLA Ég lék við þinn gull-lokldnn bjarta og leit inn í augun þín blá! þar inni með hugföngnu hjarta minn himnanna himin ég sá. Ég kom við þinn kafrjóðan vangann, oss kossinn á vörunum brann; svo rósblíða ununar angan ég aldrei í heiminum fann. En sem þegar smásólir hreinar í silfur-daggdropunum gljá, svo spegluðust eilífðir einar í augnablikunum þá. Sá sem gerði hvað mest af að útbreiða kvæði Stein- gríms með fallegum lögum var járnsmiður í Reykja- vík, sem Jónas Helgason hét (f. 1839, d. 1903). Hann stundaði iðn sína langt fram eftir ævi jafnhliða músík- iðkun, en helgaði sig svo söngmálunum algerlega síð- ari æviárin. Hann gaf út fjölda sönglaga og meira að segja leiðbeiningar um hvernig beita skyldi röddinni við söng. Ég hef það eftir fróðum að samstarf þeirra Stengríms sé ákaflega merkur kafli í íslenskri sönglist- arsögu, nánast brautryðjendastarf, því alþýða manna kunni ekki mörg sönglög á þessum árum. En það hvað Steingrímur átti mörg ljóð í sönglagaheftum Jónasar olli nokkurri öfund út í Steingrím, sem sakaður var um að hafa „gengið í komplot eða félag við Jónas Helga- son“ til að koma ljóðum sínum út svo „þjóðin væri neydd til“ að lesa þau. Nútímafólk getur auðvitað bros- að að svona skrafi, því lélegt hlýtur það tóneyra að vera sem ekki skynjar hvað Ijóð Steingríms eru sérstaklega vel löguð til söngs. Næsta ljóð er einnig eftir Steingrím. Þrjú lög eru til við það, tvö eftir íslenska höfunda, Ingi- björgu Sigurðardóttur og Sigfús Einarsson (í handriti), en kunnast er þýska lagið sem Jónas Helgason kynnti, sem mér finnst ákaflega fallegt og hæfa vel ljóði Stein- gríms, svo engu er líkara en tónskáld og ljóðahöfundur hafi haft náið samstarf, sem þó auðvitað ekki var. SVANIRNIR Hvert svífið þér svanir af ströndu, með söngvum í bláheiðan geim? Ég sé það af öllu þið ætlið í ósýnis fjarlægan heim. „Vér erum þíns sakleysis svanir, vor samvista tími nú dvín, vér förum með klökkvandi kvaki og komum ei framar til þín“. Með augunum ykkur ég fylgi, og alltaf bárust þið fjær í bláinn með blikandi vængi og burt dóu sönghljóðin skær. En síðan við hlust minnar sálar af söng yðar blítt hefir eimt, sem heyrði’ ég úr himneskri fjarlægð: „Vér höfum ei alveg þér gleymt“. Vor hjörtu þann fögnuð þá fundu, sem flýðu því miður svo skjótt; við lifðum á líðandi stundu, og ljósið varð bráðum að nótt. Þið kvödduð og komið ei framar með kliðinn, sem lengst hef ég þreyð, En, svanir, kemst ég þá til yðar, ef ómurinn vísar mér leið. 290 Herma er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.