Heima er bezt - 01.08.1974, Side 32

Heima er bezt - 01.08.1974, Side 32
starfs síns, vitandi, að syfjaðir ökumenn voru sjálfum sér sem öðrum hættulegir í umferðinni. En hversu agndofa, skilningsvana skelfing hafði verið hlutskipti hans daginn, sem hann fékk svarið við bónorði sínu: Hún var farin burt samkvæmt eigin ósk. Farin án nokkurrar skýringar. Ekki frekar en þau hefðu aldrei þekkzt, aldrei setið í grasinu og kysstzt. „Ef þú elskar mig, þá vertu góður þar til ég er farin frá þér. Þannig hafði hún sjálfsagt hugsað. Tilfinningar hans skiptu hana ekki máli. Það hafði komið glögglega í ljós, þegar hann mátti allt í einu faðma hana og kyssa, en á meðan hafði hún gert með sér ráðagerð um, að þetta yrði síðasti fundur þeirra. Er hægt að kveðja nokkum mann á jafnmiskunnar- lausan hátt? spurði Skúli Hjáhntýsson sjálfan sig. Og hann óskaði þess enn einu sinni, að hún hefði sýnt sér hreinskilni. Þótt sárt hefði verið að taka því, að hún bæri ekki ástarhug til hans, hefði það verið bamaleikur hjá því að verða að þola óhreinlyndi hennar í ofanálag. Hann hefði þá getað kvatt hana sem litlu vinstúlkuna sína og geymt minninguna um hana skýra og hreina. Hann hataði blekkingu. Fyrirleit fólk, sem beitti þeim, en hann reyndi sífellt að finna afsakanir fyrir Bimu, sann- færður um, að hann hefði aldrei, nema í fáein skipti, séð hana eins og hún raunverulega var. Þessar hugsanir höfðu gert hann vondaufan og dapran í geði. Og í hjarta hans ólgaði forsmáð ást hans eins og óslökkvandi bál án þess að hafa von um útrás. Því að Skúli þekkti sjálfan sig nógu vel til þess að vita, að hann gat ekki gefið ást sína nema einu sinni. Allt þetta hafði smám saman leitt hann út á þá braut, sem hann hafði fram til þessa sniðgengið, jafnvel þótt hann vissi, að með því ylli hann móður sinni stærstum vonbrigðum, sem hún hafði orðið fyrir til þessa. En sorg- bitið andlit móður hans, fölt andlit Rúnars og saman- bitnar varir, þegar þau sáu hann í vímu, vom honum verri áminning en nokkurt styggðaryrði. Það særði hann djúpt, en þó leitaði hann huggunar í víninu til þess að gleyma, gleyma, gleyma henni, sem hafði farið burt án þess að kveðja hann, hvað þá meir. 19. KAFLI ÓVÆNTUR, ÓVELKOMINN GESTUR Þetta virtist vera ofurvenjulegur dagur. Ósköp líkur þeim, sem á undan voru gengnir. En enginn veit, hvað býr í þögulu skauti komandi dags. Það eru einmitt þeir dagar, sem hefjast á venjulegan hátt, sem koma oft smjúg- andi á óvart. Og þetta var einn af þeim dögum, þótt Lovísu dytti það ekki í hug, fyrr en hún sá ljósbláan, ókunnan fólksbíl nema staðar fyrir utan húsið hjá henni með dálitlum rykk. En Lovísa hafði samt enga hugmynd um, að forlögin voru að koma í heimsókn, eða öllu heldur fortíðin. Það skildist henni ekki fyrr en hún sá stúlkuna koma út úr bílnum, skugga af fortíðinni, sem hafði dvalizt á heimili hennar, öllum óvelkomin. Nú var skugginn fyrir aughti Lovísu, holdi klædd mannvera, engin ofsjón, en samt jafnóvelkomin og áður. Hún var klædd mosagrænum síð- buxum og jakka með sama lit. Stuttklippt hár hennar ýfðist örlítið af vindi, sem gerði sér dælt við hana, rétt eins og hann kannaðist við hana frá fornu fari. Kannski mundi hann líka eftir henni frá því í fyrra? Lovísa hopaði. Alla aðra hafði hún búizt við að sjá fremur en hana. Þessa stúlku, sem hafði læðzt hljóðlega út um bakdyrnar án þess að gefa nokkra skýringu á burtför sinni. Og satt að segja hafði hún verið svo grunn- hyggin að halda, að hún væri farin fyrir fuUt og allt. En því var ekki að heilsa. Skær bjölluhljómur sannaði það bezt. Gesturinn hafði boðað komu sína. Lovísa sneri sér við hægt og andvarpaði í hljóði. Það voru til stúlkur, sem héldu að þær gætu gomið og farið, þegar þeim bauð svo við að horfa. Sonur hennar hafði verið svo óheppinn að festa ást á einni slíkri. Nú stóð hún fyrir utan dyrnar, og Lovísa fór ekki í neinar grafgötur um að hverjum hún væri að leita. Og Lovísa vissi, að hann mundi gleyma öllu, þegar hann sæi hana. Elska hana og sitja svo ef til vill uppi með sárt ennið, þegar hún brygðist honum aftur. Já, ef til viU. Það var nú stóra spurningin: Til hvers var hún komin? Ætlaði hún sér eitthvað í alvöru nú? Það var ótrúlegt, en Lovísa vildi vera réttsýn. Allir gátu bætt ráð sitt, og Bima einnig. Og þegar málið var skoðað niður í kjöhnn, vissi Lovísa, að hún var harla lítUs megnug að þessu sinni. Sonur hennar var ekki lengur lítill drengur, sem hún gat tekið leikfang af, vegna þess að það gæti skaddað hann. Leik- fang gleymist litlum hnokka, en ástin gleymist ekki fuU- orðnum manni, allra sízt Skúla. Þess vegna vissi Lovísa, að hún gat ekkert annað gert en bjóða þessari stúlku inn og sjá svo, hverju fram yndi. Þegar á allt var litið, var Skúli fullorðinn maður, sem átti að kunna að velja og hafna. Hún hafði heldur aldrei ætlað sér að verða afskiptasöm móðir, því að hún vissi, að slíkt gat reynzt tvíeggjað vopn. Á hinn bóginn var oft erfitt að sitja hjá og þegja. Aftur hvað við bjölluhljómur, og í þetta sinn lét Lovísa verða af því að ljúka upp fyrir gestinum. Þær stóðu þarna andspænis hvor annarri, ung, hikandi stúlka með grá augu, sem báðu um vægð, og lífsreynd kona, sem bar í dökkum augum sínum illa dulda tor- tryggni. Þetta kuldalega fas orkaði á stúlkuna. Hún heils- aði án þess að áræða að rétta fram hönd sína. Hún hafði ekki hugmynd um, að þessi tilkomulitla kveðja var í aug- um Lovísu eitt táknið enn, sem henni var ekki í vil. Samt tók hún kurteislega undir kveðju Bimu. Stúlkan handlék tösku sína og dreyrroðnaði. „Er Skúli heima?“ Þessi spurning var borin fram af barnslegri ákefð. 296 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.