Heima er bezt - 01.11.1984, Síða 43
HENDINGAR
Andrés Valberg
í R'éykjavík var í hópferö með Feröafélagi Islands undir leið-
sögn Guöjóns Jónssonar frá Fagurhólsmýri. Guðjón var haf-
sjór af fróðleik og einkum ofbauð mönnum þekking hans á
örnefnum. Andrés kvað þegar Guðjón þagnaði:
Loks varð hlé á Guðjóns gargi,
gafst nú lausn frá örnefnum.
Það var eins og þungu fargi
þá væri iétt af mannskapnum.
Ingólfur Jónsson á Hellu, alþingismaður og ráðherra, naut
mikilla vinsælda í kjördæmi sínu, svo andstæðingunum
fannst nóg um. Andrés orti um sr. Sigurð Flaukdal á Berg-
þórshvoli (föður Eggerts alþingismanns), sem studdi Sjálf-
stæðisflokkinn og Ingólf Jónsson á Hellu dyggilega:
Ánægður klerkur við amstur og puð
og íhaldsins þrotlausa dellu,
við tíðir í kirkjunni talar um guð,
en trúir á Ingólf á Hellu.
Þórður Halldórsson
frá Dagverðará á Snæfellsnesi, landskunnur hagyrðingur,
refaskytta, veiðimaður og sagnamaöur, telur að greindar-
vísitala manna fari því örar hækkandi þeim mun hærra sem
þeir eru getnir yfir sjávarmáli. Eftirfarandi staka hans á að
bera vitni hvar hann sjálfur varð til:
Horskar konur, karskar enn,
klæðast skjótt úr tískuhökli:
Skapast hafa mestu menn
milli þúfna á Snæfellsjökli.
Þórður er allra karla hressastur, þótt eigi tæpt ár í ní-
rætt, og þakkar hann það ýmsum náttúrufyrirbærum á
Snæfellsnesi eins og ölkelduvatni og segulmögnuðum
hraunum. Telur hann jafnvel hugsanlegt, að hann sé búinn
með ellina og farinn að yngjast aftur, að minnsta kosti fari
sjónin og minnið stöðugt batnandi. Um þetta einstæða
ástand orti Þórður:
Fátt er hraustum manni um megn,
magnaður lífsins galdur:
Ellina klár ég komst í gegn,
og kominn á besta aldur.
Jóhann S. Hannesson
fyrrum skólameistari og Ijóðskáld, setti oft saman limrur af
miklum hagleik. Þessa hefur hann ort þegar honum varð
hugsað til dýrðar liðins tíma í samanburði við staðlaða nútíð-
Fyrst hvergi fæst súrt, kæst né sigið
eða sést upp við bæjarvegg migið,
og öll fæða dóssett
og alls staðar klósett,
er örlagavíxlsporið stigið.
Ófeðraðar stökur
Ekki þekkjum við nöfn þeirra sem ortu eftirfarandi vísur, og
væri blaðinu akkur í að fá upplýsingar frá lesendum sem
kannast við þær eða geta feðrað.
KIM IL SUNG
er forseti Norður-Kóreu, og þessi sérstæða ferskeytla fjallar
um Kóreustríðið á sjötta áratugnum, þegar bandarískt herlið
var sent á vettvang. Höfundurinn virðist hliðhollur Kim:
Kim er okkur kær II Sung,
Kóre- stjórnar Norður u.
Aug- hann dregur a ípung,
Amrí- fer í stríð við ku.
Hriflu-Jónas
Þótt Jónas Jónsson væri persónufróður og minnugur, fannst
einhverjum ástæða til að hreykja sér af víðtækari þekkingu:
Ég í Húnaþingi þekki
30 eða hérumbil,
sem Hriflu- Jónas hafði ekki
hugmynd um að væru til.
Leióréttingar
við vísnaþáttirin ,,Hendingar‘‘ í síðasta blaði
Páll Helgason á Akureyri hringdi og benti okkur á 2 slæmar
villur í þættinum ,,Hendingum“ á bls. 318 í 9.-10. tbl. HEB
1984.
# Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum er þar ranglega
nefndur, og þó ekki í fyrsta sinn, Gísli Eiríksson. Gísli
Ólafsson birti m.a. kveðskap sinn í bókinni ,,Á brotnandi
bárum“, sem út kom 1944.
# Einar Andrésson í Bólu er ranglega nefndur Einar
Bjarnason. Grein um Einar Andrésson birtist í ritinu
,,Menn og minjar", 6. hefti 1949. Vísan sem hefst svona:
,,Auðs þótt beinan akir veg. . .“ er ein af 22 vísum í
kvæðinu „Tveir menn á ferð.“
Við kunnum Páli Helgasyni bestu þakkir fyrir leiðréttingarnar
og biðjumst afsökunar á glapræðinu. Valgeir Sigurðsson og
fleiri hafa nýlega í HEB bent á nauðsyn þess að fara varlega
þegar birtur er kveðskapur og höfundar tilgreindir. Við reyn-
um að láta þessi dæmi okkur að kenningu verða.
ÓHT.
Ólafur H. Torfason