Æskan - 01.05.1964, Blaðsíða 20
„Nei. Eg kannast við þetta. Það er verið
að smala.“
„Hvað er að smala, mamma?“
„Þá reka mennirnir kindurnar saman og
láta þær fara inn í hús, sem ekkert þak er
á og þar draga þeir okkur fram og aftur.
Húsið kalla þeir rétt.“
„Þeir skulu ekki fá að láta mig í þetta
réttarhús,“ sagði litla lambið og var auð-
heyrt, að það ætlaði að standa við orð sín.
„Það er ekki hægt að komast hjá því,
þeir eru svo voðalega fljótir að hlaupa og
gæta þess svo vel, að við getum ekki slopp-
ið burt frá þeim. En nú verðum við að flýta
okkur til hinna kindanna.“ Mamman hljóp
af stað og litla lambið á eftir. Og áfram
var hlaupið. Mamman og litla lambið voru
komin inn í stóran hóp, fyrr en varði. Þar
var mikill hávaði. Þar voru mömmur að
kalla á lömbin sín og lítil lömb að kalla á
►£♦•£♦•£♦•$♦♦£♦♦£♦♦$♦♦^♦•^♦♦^•♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦£♦♦$♦♦$♦♦$♦♦$♦♦$••£♦♦£♦♦$♦♦*♦♦$♦♦$♦♦£•♦£♦♦$♦♦£♦♦$♦•$♦♦$♦♦$♦♦£••$♦♦£♦♦£♦♦£♦♦$♦♦$♦•£••$
íbúð brezka söngkvartettsins
„The Beatlcs“ í London fylltist
nýlega af bréfum og gjöfum,
vegna þess að einn bítlanna,
George Harrison, varð 21 árs.
Alls þurftu póstþjónarnir að
rogast þangað með 52 póstpoka,
fulla af alls kyns gjöfum, með-
al annars hárburstum, skyrt-
um, sokkum o. fl. þess háttar.
!*»!**!•*!**!*•!**!**!**!**!**!*»!**!**!••!**!**!**!**!**!•.!**!**!**!**!**!**!**!**!**!**!•*!**!**!*•!•*!**!**!**!**!*•!•*!*•!•
168
mömmurnar sínar. Litla lambið hennar
Skeifhyrnu reyndi að gæta þess að missa
ekki af mömmu sinni. Mikil voðaleg hlaup
voru þetta. Litla lambið fór að verða þreytt
og svo var heitt í veðri. Loks fór litla lamb-
ið að gapa, því var svo voðalega heitt.
Mamma þess sneri sér allt í einu til litla
lambsins og sagði: „Þarna er réttin. Þar
eigum við að fara inn.“
Framhald í næsta blaði*
NÝ BÓK
Hetjan unga
eftir HERBERT STRANG
ER KOMIN ÚT I NÝRRI ÚTGÁFÚ.
Bókina þýddi Sigurður Skúlason magister.
Þetta er í þriðja sinn, sem þessi ágæta saga
kemur út hjá Bókaútgáfu Æskunnar, og
hefur hún verið ófáanleg um langan tíma.
HETJAN IJNGA mun enn vera það les-
efni, sem öll ftörn á aldrinum 9 til 12 ára
kjósa sér helzt.
Verð bókarinnar er kr. 55,00 án söluskatts.
BÓKAÚTGAFA
ÆSKUNNAR