Æskan - 01.11.1966, Blaðsíða 46
iiiimiiimimiimimimiiiiiiiimiimiiiimiiiimm
Torg í Betlehem í dag. Fæðingarkirkjan í baksýn.
Betlehem og íbúana þar. Maður finn-
ur það um leið og komið er að borg-
inni liina gömlu leið. Það er eins og
töfrar, sem ómögulegt er að útskýra.
En allir þeir mörgu, sem ferðast til
Betlehem, hafa orð á þessu.
Það eru jól. — Það eru núna ylir
1966 ár síðan Jesús fæddist hér. Ef
menn spyrja eftir allar þær aldir, sem
Hérna tilkynnti engillinn hirðunum fæðingu Jesú.
liðnar eru frá því Heródes réði hér
ríkjum, hvort hinir gömlu siðir séu
ekki löngu gleymdir, verður svarið
nei. Séu bifreiðir og símaþræðir íjar-
lægðir, er staðurinn ósköp likur því
sem hann var á dögum jólaguðspjalls-
ins. Meðfram gamla veginum, sem
liggur upp að borginni í austurátt,
fram hjá gröf Rakelar og grafhýsi
Pontíusar Pílatusar, kemur maður
upp á hæð, og þaðan sést borgin
breiða úr sér í skarpri sólbirtunni.
Ef til vill hafa vitringarnir staðið hér
og horft yíir bæinn og séð jólastjörn-
una stanza hérna og vísa þeim veginn
að íjárhúsinu. Klæðnaður fólksins
hefur lítið breytzt, er næstum sá sami
og við sjáum á gömlum biblíumynd-
um.
Eins og þá bera konur leirkrukkur
og körfur á höfðinu, og karlmenn
nota asna til flutninga og reiðar, og í
fjarlægð getur að líta úlfaldalest, sem
er á leið til bæjarins. Eru það kannski
vitringarnir að koma? Það væri ekki
svo undarlegt að láta sér detta það í
hug, því jólakvöldið á þessum eilífa
stað er ekki haldið með jólatrjám og
jólabögglum, heldur úti á Betlehems-
völlum meðal fjárhirðanna, meðan
kirkjuklukkurnar hringja inn jóla-
boðskapinn yfir land undir náttsvört-
um himni, þar sem ein stjarnan Ijóm-
iiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimEiiiiiiiiiiiiiiiiiiEiiHi!i>llH,!"i!l!