Æskan - 01.10.1969, Page 3
Æskan
70 ára
SlgurSur Júl. Jóhannesson
Þa5 voru merkileg tímamót, þegar ÆSKAN hóf
göngu sína 5. október 1897. Með útgáfu hennar
var fyrir alvöru farið að viðurkenna hér á landi þá
þörf, að börn og unglingar fengju lestrarefni við sitt
hæfi. Tildrög að útgáfu hennar voru þau, að Þor-
varði Þorðvarðssyni, stórgæzlumanni ungtemplara,
höfðu borizt óskir frá ýmsum Góðtemplarastúkum
um að stórstúkan gæfi út barnablað ,,til eflingar
bindindi, góðu siðferði, framförum og menntun ungl-
inga yfir höfuð.“ Stórstúkan veitti til fyrirtækisins
150 krónur og ÆSKAN hljóp af stokkunum undir
ritstjórn Sigurðar Júl. Jóhannessonar. Ritstjórinn var
vinsælt skáld, einkum meðal æskulýðsins, og ( för
með sér valdi hann fræga rithöfunda af Norðurlönd-
um, svo sem H. C. Andersen, ævintýraskáldið
danska, og Zaharias Topelius, hið finnska skáld.
En sögur og ævintýri þessara skálda urðu mjög vin-
sæl hér á landi eins og annars staðar. Það var því
auðséð, að ÆSKAN mundi ná vexti, hún dafnaði ár
frá ári. Þó urðu ýmsir örðugleikar á vegi hennar,
svo að hún svaf Þyrnirósarsvefni í tvö ár, árið 1909
og 1920, vegna pappírsskorts. Hún er í raun og veru
72 ára, en þessi ár, sem hún svaf, telur hún ekki í
ævi sinni og heldur því 70 ára afmæli sitt á þessu
hausti.
Ritstjórar ÆSKUNNAR í þessi 70 ár hafa verið:
Sigurður Júl. Jóhannesson, árin 1897—1898.
Ólafia Jóhannesdóttir, 1899—1900.
Hjálmar Sigurðsson, 1900—1903.
Friðrik Friðriksson, 1903—1908.
Aðalbjörn Stefánsson og Sigurjón Jónsson, 1910
—1922.
Sigurjón jónsson (einn), 1922—1928.
Margrét Jónsdóttir og Guðmundur Gíslason,
1928—1930.
Margrét Jónsdóttir (ein), 1931—1942.
Guðjón Guðjónsson, 1942—1955.
Þá voru þeir Ólafur Haukur Árnason, Grímur Eng-
llberts og Helgi Tryggvason ráðnir ritstjórar. Helgi
lét af starfi eftir eitt ár, en Ólafur um áramótin
1957—58. Þá var Heimir Hannesson ráðinn með
Qrimi. Hann starfaði við blaðið í eitt ár, en siðan
hefur'Grímur Engilberts verið ritstjóri einn.
Enginn einn maður hefur annazt afgreiðslu blaðs-
ins eins lengi og Jóhann Ögm. Oddsson, eða í 34
ár. Jóhann var meira en venjulegur afgreiðslumaður
ÆSKUNNAR. Hann var allan þann tlma framkvæmda-
stjóri blaðsins, rak mikla útgáfu á vegum þess og
svo bókaverzlun.
Framkvæmdastjóri blaðsins og bókaverzlunarinn-
ar hefur verið síðan 1962 Kristján Guðmundsson.