Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 4

Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 4
 >► Afmæliskveðja frá forseta Islands Margar hugljúfar bernskuminningar eru tengdar Barna- blaðinu Æskunni. Hún var góður gestur á sveitaheimilinu, þar sem ég ólst upp fyrir fjórum til fimm tugum ára, og góður gestur er hún enn á þúsundum heimila, þar sem yngstu lesendurnir bíða hennar með eftirvæntingu. Æskan hefur nú verið á vegferð sinni um landið í sjötíu ár. Það er langur tími og virðulegur aldur, en sízt eru á henni ellimörk. Hún er glaðleg og frjálsleg og leikur á marga strengi við hæfi lesenda sinna og lætur ekkert leiðinlegt slæðast inn fyrir sínar dyr. Gott eitt er erindi hennar. Ég óska Æskunni til hamingju með merkisafmælið og þakka langt og gott starf hennar fyrir börnin í landinu. Kristján Eldjárn Kristján Eldjárn. Kveðja frá formanni Blaðamannafélags Islands ivar H. Jónsson. Ivar H. Jónsson, formaS- Blaðamannafélags islands, skrifar: ÆSKAN — 70 ára á þessu hausti — er ekki ein- ungis elzt íslenzkra barna- blaða, heldur og eitt af elztu blöðum sem út eru gefin á íslandi og jafnframt í hópi þeirra sem náð hafa mestri útbreiðslu; hún skipar virðu- legan sess meðal íslenzkra blaða og hefur löngum átt þátt í að fullnægja lestrar- þrá og lestrarþörf barna og unglinga. Stórstúka íslands hóf út- gáfu Æskunnar seint á ár- inu 1897 „til eflingar bind- indi, góðu siðferði, fram- förum og menntun unglinga yfir höfuð", og íyrsti rit- stjóri blaðsins, skáldið Sig- urður Júlíus Jóhannesson, markaði þegar í upphafi þá stefnu í efnisvali sem arf- takar hans í starfi hafa sið- an fylgt í meginatriðum: Fyrst og fremst hefur þess verið gætt að efni blaðsins væri við hæfi lesendanna, að lestur þess veitti Pörn- unum gleði, jafnframt þvi sem blaðið hjálpaði þeim að vera góð börn og stuðlaði að þvf að lesendurnir ungu yrðu upplýst börn, svo grip- in séu setningabrot úr rit- stjóraávarpi í einu af fyrstu afmælisblöðum Æskunnar. Núverandi ritstjóri Æsk- unnar, Grímur Engilberts, hefur á síðustu árum ekki aðeins lagt áherzlu á mikla fjölbreytni í efnisvali, held- ur líka fjörlega uppsetningu oa umbrot, og þannig tekizt að gera blaðið einstaklega líflegt og skemmtilegt. Sí- stækkandi hópur kaupenda bendir eindregið til þess að lesendurnir ungu kunni vel að meta það ágæta starf sem við útgáfu blaðsins er unnið; á þessum tlmamót- um í sögu Plaðsins verður því ekki i fljótu Pragði ann- að séð en Æskan eigi fram- tíðina fyrir sér og muni á komandi áratugum flytja uppvaxandi kynslóðum les- efni þeim til skemmtunar og íróðleiks. Þá árnaðarósk á ég bezta barnablaðinu til handa nú á sjötugsafmæl- inu, að það verði lengi enn kær heimilisvinur íslenzkra ungmenna. ívar H. Jónsson. 420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.