Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1969, Side 9

Æskan - 01.10.1969, Side 9
■z Æskan flytur margs kon- ar efni að vanda og er á- nægjulegt, að hið nær 70 ára blað skuli þjóna hlut- verki sfnu við yngstu kyn- slóðina jafn vel og raun ber vitni. Æskan er mjög mynd- skreytt og flest börn munu finna þar bæði eitt og ann- að við sitt hæfi. Dagur á Akureyri. Efni Æskunnar er mjög fjölbreytt svo sem verið hef- ur undir ágætri ritstjórn Gríms Engilberts, í senn fróðlegt og skemmtilegt. Æskan ætti að koma á hvert barnaheimili, ekki þar fyrir að fullorðnir geti ekki haft af blaðinu gagn og gaman. Austurland i Neskaupstað. FaSir skrifar: „Velvakandi góður! Þegar ég var strák- ur, fékk ég alltaf barnablað- ið Æskuna og beið hvers eintaks með mikilli eftir- væntingu. Eins og að líkum lætur hætti ég að lesa blað- ið, þegar ég stálpaðist — og það var ekki fyrr en mín börn tóku að stálpast, að ég endurnýjaði kynni mín við Æskuna, því að ég gaf þeim áskrift strax og þau fóru að stauta. Ég varð mjög ánægður að uppgötva, að Æskan er enn jafn ung, og ég held, að hún sé miklu friskari nú en áður. Ritstjórinn, Grímur Engilberts, vinnur mikið og vel þakkað starf fyrir börn- in í landinu. Æskan er aftur orðin eitt vinsælasta les- efnið á mínu heimili — og sjálfur er ég jafnvel farinn að glugga í hana mér til ánægju. Æskan mun nú vera gefin út í fleiri eintökum en nokkurt ánnað tlmarit á ís- landi — og mér finnst það ekkert undarlegt. Berðu rit- stjóra og öðrum aðstand- endum Æskunnar mínar beztu kveðjur.“ Velvakandi, 1968. Jóhann Ögm. Oddsson • • Jóh. Ogm. Oddsson Árið 1927 tók Jóhann að sér afgreiðslu og framkvæmda- stjórn Barnablaðsins ÆSKUNNAR og gegndi þvi starfi til ársins 1961. Áður en Jóhann tók við þessu starfi rak hann verzlun um árabil hér i Reykjavik. Á því timabili sem Jó- hann starfaði við ÆSKUNA óx kaupendafjöldi hennar mjög mikið. Árið 1930 hóf ÆSKAN að gefa út barna- og ungl- ingabækur, og meðan Jóhann starfaði við ÆSKUNA gaf hann út á annað hundrað bækur. Árið 1939 jók Jóhann enn við starfssvið ÆSKUNNAR með stofnun bóka- og rit- fangaverzlunar ÆSKUNNAR, sem síðan hefur verið rekin af Barnablaðinu ÆSKUNNI. Jóhann var meðlimur i Góðtemplarareglunni og starfaði þar mjög mikið, og meðal annars var hann stórritari Stór- stúku íslands um 35 ára skeið. Sæmdur var hann hinni íslenzku fálkaorðu fyrir félagsmálastörf. Allt sem Jóhann tók að sér að gera var framkvæmt, og ekkert var spurt að þvi, hvenær vinnudagur hæfist eða hvenær hann endaði. Jóhann var alla tið mikill dýravinur og var einn þeirra, sem stofnuðu Dýraverndunarfélag jslands árið 1914. Hann annaðist afgreiðslu Dýraverndarans fyrslu árin, sem hann kom út. Jóhann var vel pennafær og skrifaði margar greinar i blöð um dýrin og var þá oft ekki myrkur i máli, þegar hann var að berjast fyrir þessa mállausu vini sina, dýrin. Jóhann andaðist 25. október árið 1964. Minnizt þess, að eftir þvi sem áskrifendum ÆSKUNN- AR fjölgar, verður blaðið stærra og fjölbreyttara. Á þessu merkisári i sögu blaðsins er takmarkið, að ÆSKAN komist inn á hvert barnaheimili landsins. Hefj- umst nú öll handa og lát- um nýja áskrifendur streyma STÆRRA til blaðsins. — Minnumst þess, að ÆSKAN er stærsta og ódýrasta barna- og ungl- ingablað landsins. Sýnið jafnöldrum ykkar þetta glæsilega blað og bendið þeim á að gerast áskrifend- ur strax! Árgangurinn kostar að- eins kr. 250,00. Ný, sókn Viljið þið nú ekki athuga, hvort þið getið ekki glatt blaðið ykkar á 70 ára af- mælisárinu með því að senda því í afmælisgjöf einn eða fleiri nýja kaupendur. Minnizt þess, að eftir því sem kaupendum ÆSKUNN- AR fjölgar, verður blaðið stærra og fjölbreyttara. Á þessu merkisári i sögu ÆSKUNNAR er það takmark okkar, að ÆSKAN komist inn á hvert barnaheimili landsins. Árgangurinn kostar að- eins kr. 250,00. Jólablaðið Þeir, sem eiga eftir að greiða ÆSKUNA, kr. 250,00 fyrir yfirstandandi ár, eru vinsamiega beðnir að minn- ast þess, að senda ber greiðslu strax! Jólablaðið er næsta blað, og verður það mjög fjölbreytt að efni. £

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.