Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1969, Side 12

Æskan - 01.10.1969, Side 12
INGIBJÖRG ÞORBERGS: TAL OG TÓNAR Hugleiðing á 7 0 ára Aðallega œtluð Stórþjóðir virðast vita, að grundvöllur ríkjanna er uppeldi æskunnar. Oft finnst mér smáþjóðirnar ekki gera sér fylliiega grein fyrir þvf. Hér heyrir maður t. d. iðulega sagt: „Þetta er fullgott fyrir krakkana," hvort heldur um hljóðfærakaup er að ræða eða val á andlegu efni, sem hefur uppeldíslegt gildi. Slíkur hugsunarháttur getur haft varan- legan skaða í för með sér. Allir vita, að grunnurinn verður að vera traustur, eigi húsið ekki að hrynja. Megnið af því efni, sem sent er hér á markað fyrir börn, hvort heldur það er lestrarefni eða tónlist, er yfirleitt látið afskiptalaust. Af þeim, sem listir dæma og styrki veita, er það heldur lítils metið, — ef ekki einskis. Venjulega er verr greitt fyrir það en annað efni, og þess vegna er oft kastað til þess höndunum, í stað þess að íhuga það og meta betur en það efni, sem þeim er ætlað, er hafa þroskaðri dómgreind til að velja og hafna. Þó verð ég að segja, að lesefni barna tekur tónlistinni stór- lega fram. En þó að þeir rithöfundar, sem rita góðar barnabækur, séu ekki metnir til jafns við þá, sem rita bækur fyrir fullorðna, jafnvel þótt lélegar séu, stefnir það þó allt í rétta átt. Þeir eru a. m. k. margir viðurkenndir sem félagar I Rithöfundasambandi íslands. Erfiðara yrði fyrir tónskáld, sem semdi lög fyrir börnin til að syngja og spila, að fá viðurkenningu Tónskáldafélags ís- lands. afmæli Æskunnar lesendum hennar Sú tónlist, sem dynur í eyrum barna hér og læðist inn í huð þeirra, er yfirleitt alls ekki við barna hæfi. Börn og unglingar finna sér alltaf átrúnaðargoð. Hvort þa® eru söguhetjur, tónlistar- eða kvikmyndastjörnur, sem þau heiH' ast af, verða þau fyrir sterkum áhrifum frá þeim. Því börn eru mjög hrifnæm, og skapgerðarmyndun og þroski þeirra mótast mikið af þessum átrúnaðargoðum. Það er því ekki sama, hvað festir rætur í hugum þeirra. — Ekki sama hvert átrúnaðargoðið er. Fjölmiðlunartæki nútímans ráða þar miklu. Sterk auglýsinga' tækni getur svæft eða vakið skynsemina, eftir því hvernig henrn er beitt. Það er vissulega vandi að vera ritstjóri barnablaðs. Hann Þar* margs að gæta. Efni blaðsins þarf að vera fjölbreytt til að halda lesandanum vakandi. Ekki má þó láta tízku- eða dægurmál vera þar allsráðandi. Blaðið þarf að hafa þroskandi og siðferðileð3 góð áhrif á lesanda sinn. Þetta virðist mér vera undirstaða þeirra stórþjóða-bamablaðar sem ég hef séð, eins og t. d. eins alþekktasta barnablaðs Banda- ríkjanna, „Jack & Jill“, kanadísku Rauðakross-barnablaðanna o9 fleiri slíkra. Og nú á þessu merkisafmæli ÆSKUNNAR óska ég Gríh11 Engilberts ritstjóra sérstaklega til hamingju. Hann getur ófeim- inn sett ÆSKUNA við hliðina á þessum alþekktu — og öðruh1 beztu — barnablöðum heims. ÆSKAN stenzt þar fyllilega saman' burð. Þess vegna fer það ekki milli mála, að starf sitt vinnúr Grímur af heilum hug. Það sannar fjöldi þeirra heimila, sem ÆSKUNA kaupir, á þessum tímum sjónvarps og alls kyns skemm{' ana. Mér er kunnugt um, að það eru ekki aðeins börnin og ungl' ingarnir, sem bíða hvers blaðs með óþreyju, heldur fólk á öllum aldri — vitanlega ungt í anda! Svo að óhætt er að segja> ÆSKAN er sannkallað heimilis- eða fjölskyldublað. — Og ar,itt á ég með að skilja, að sá maður, er stýrir og hefur stýrt svo útbreiddu blaði í fjölda mörg ár, skuli enn sem stendur ekki hafa öðlazt réttindi sem félagi í Blaðamannafélagi (slands, sök um þröngsýni og afturhaldssemi forráðamanna þess. Væri skk1 kominn tími fyrir Blaðamannafélagið að endurskoða lög sín? Nú eru sem sagt liðin 70 ár frá þvl að Barnablaðið ÆSKA kom fyrst út. Þeir, sem þá voru ungir og lásu hið fyrsta tölubla ’ eru nú líklega flestir látnir... Og þeir, sem enn lifa, orðmr

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.