Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 17
• : • >...... »:• ',:,. jgSS-ÍSS
í september- og októbermánuði ár hvert
’aka allir skólar landsins til starfa. Og um
^iðjan október, þegar skólarnir eru komnir
Vel af stað, hefst hið glæsilega uppeldis-
°9 félagsstarf Unglingareglunnar, sem víða
er i föstum tengslum við skólana og und-
lr traustri stjórn kennara og skólastjóra.
hefja meira en 60 barna- og unglinga-
skólar störf sín á þessu ári um land allt.
Það er álit þeirra, sem til þekkja, að
störf Unglingareglunnar hafi haft mjög mik-
ið og heillarlkt uppeldislegt gildi fyrir
æsku íslands um meira en áttatíu ára
skeið. Við treystum því, að starfsemi Ungl-
ingareglunnar verði ekki minni á þessum
vetri en á undanförnum árum og mundum
fagna því mjög, ef við fréttum af stofnun
nýrra deilda. Blessunarrik áhrif Unglinga-
reglunnar þurfa að ná til sem allra flestra
ungmönna.
Við sendum beztu kveðjur til allra barna-
og unglingastúkna landsins og flytjum
þeim innilegar óskir um heillarík störf í
vetur. Við væntum, að sem flestar stúkur
sendi okkur myndir og stuttar fréttir frá
starfinu til að birta hér á síðunni — og
geri það sem íyrst.
Við birtum að þessu sinni hópmyndir
frá tveimur stúkum.
433