Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 22
ÆSKAN hefur frá 1956 verið prentuð í
prentsmiðjunni ODDA hf., er var til húsa
Íið Grettisgötu 16, en í fyrra fluttist fyrir-
ækið í ný húsakynni að Bræðraborgarstíg
7 í Reykjavík. Þessi nýju heimkynni prent-
smiðjunnar er hús upp á fjórar hæðir og
ris. Á 1. hæð er pressusalur, og eru þar
allar nýjustu og fullkomnustu vélar til
prentunar. Síðustu tvö blöð ÆSKUNNAR
hafa nú verið prentuð í nýjustu vél fyrir-
tækisins, sem er offset-prentvél, og hefur
prentun í þessari vél breytt mikið útliti
blaðsins, þar sem nú er hægt að prenta
fleiri en einn lit í einu. Á 2. hæð er setjara-
salur, og eru setningarvélarnar — 4 talsins
— f annarri álmunni, en handsetning og
umbrot f hinni. Á þriðju hæð er bókband
og á fjórðu hæðinni skrifstofur o. fl. í ris-
hæð er kaffistofa starísfólks, en við fyrir-
tækið vinna á milli 50 og 60 manns. Kjall-
ari er undir öllu húsinu, og er þar pappfrs-
geymsla, blýbræðsla o. fl.
Prentsmiðjan ODDI hf. er 26 ára gömul,
og þótt aldurinn sé ekki hár, er fyrirtækið
orðið eitt af þeim stærstu í sinni iðn hér
á landi.
Forstjóri ODDA hf. hefur frá upphafi ver-
ið Baldur Eyþórsson, og þakkar blaðið
honum og öllu hans starfsfólki góða sam-
vinnu á liðnum árum.
3 stórar bókaprentvélar eru i vélasal. Þar eru allar bækur Æskunnar prentaðar.
Prentsmiðjan ODDI hf
Bókbandsvinnustofurnar eru stórar og rúmgóðar.
Hluti af setjarasal.
Hin stóra offsetvél, sem ÆSKAN er nú prentuð í.
438