Æskan - 01.10.1969, Blaðsíða 26
LÓA litla landnemi
Einn lndíáni átti heima í grennd við þau. Var það gamall
maður og hét harin Ramsey.
Hann var mjög föngulegur maður, karlmannlegur og stór og
glæsimenni í útliti. Var hann hið mesta ljúfmenni, kom oft heim
til þeirra og talaði við fullorðna fólkið og gældi við börnin.
Ramsey var ekkjumaður, tvígiftur,'og hafði önnur kona hans
dáið úr bólunni. Tvær dætur átti hann, íullorðnar, og voru þær
mjög ólíkar föður sínum og fremur ófrýnilegar, enda höfðu Jrær
fengið bóluna og voru bólugrafnar í andliti. Ramsey var stundum
að reyna að læra að tala íslenzku, og gekk það misjafnlega sem
von var. Þegar Þórunn bað eitthvert barnanna að rétta sér skærin
sín, hafði Ramsey það eftir og sagði: „Skærli mín“, og höfðu
börnin gaman af. Börnunum Jrótti líka gaman að láta hann
kenna sér Indíánamál.
Lærðu þau nokkur orð í því máli, en gekk það víst lítið
betur, en Ramsey gamla með íslenzkuna. Sem dæmi má nelna,
að þau lærðu hjá honum, að handhringur væri á Jrví máli:
„íben-tíben-síben-só“. Hvernig haldið Jrið að ykkur gengi að
læra svona mál, börnin góð?
ORÐSENDING.
Munið að setja nafn og heim-
ili ykkar á bréfin þegar þið
skrifið okkur. Það er góð regla
að setja nafn sitt aftan á um-
slagið sem bréfið er sent í, það
er trygging fyrir því að bréfið
komizt til skila.
ÆSKAN.
Jón Engilberts.
KÁPUMYND
í tilefni af 70 ára afmæli
ÆSKUNNAR birtum við á for-
siðu mynd eftir Jón Engilberts
málara, er hann nefnir „fsland,
farsælda frón" og er eitt af þeim
listaverkum, sem Jón Engil-
berts gerði fyrir hátiðaútgáfu á
verkum Jónasar Hallgrímsson-
ar, er bókaútgáfan Helgafell gaf
út árið 1945. Tvö listaverk úr
þessari útgáfu hafa áður birzt
hér á forsíðu. Það fyrra í mai
1967, er gert var við Ijóð Jón-
asar Hallgrímssonar, „Ég bið
að heilsa", og það siðara í
febrúar 1968, er gert var við
Ijóð Jónasar, „Stóð ég úti i
tunglsljósi".
Þar sem 2. tölublað af yfir-
standandi árgangi er þegar
uppselt, verður nýjum áskrif-
endum aðeins sent blaðið frá
þeim tima að áskrift berst tii
blaðsins, og greiða nýir áski'tf-
endur þá fyrst fyrir árið 1970
— eða fyrsta apríl 1970.
Ágúst 1969
Barnablaðið ÆSKAN.
442