Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1969, Page 32

Æskan - 01.10.1969, Page 32
FÖR GÚLLÍVERS TIL PUTALANDS egar ég var að leika þessar listir mínar hirð- inni til skemmtunar tveimur eða þremur dög- um áður en ég var látinn laus, þá kom hrað- boði til hans hátignar til að skýra honum frá, að nokkrir af þegnum hans hefðu verið á reið nálægt þeim stað, þar sem ég fannst fyrst, og hefðu þeir séð þar afarstórt flykki liggja á jörðinni, mjög undar- lega vaxið, því að það rétti út vængi sína eins breitt og gólfið væri í svefnherbergi hans hátignar, en reisti sig upp í miðjunni fulla mannhæð. Það væri þó ekki lifandi vera, eins og þeir höfðu hugsað í fyrstu, því að það lægi þar hreyfingarlaust í grasinu, og sumir þeirra hefðu gengið í kringum það hvað eftir annað, þeir hefðu og komizt upp á það, með því að klifra hver upp á herðarnar á öðrum, og væri það flatt og slétt að ofan, og með því að stappa á það, hefðu þeir komizt að því, að það væri holt innan, og að þeir gætu sér þess til, allra þegnsamlegast, að það kynni að vera einhver kynjahlutur, sem Mannfjallið ætti, og ef hans hátign þóknaðist, mundu þeir takast á hend- ur að aka því þangað með svo sem 5 hestum. Daginn eftir komu svo flutningsmennirnir með hattinn minn, en miður vel útleikinn. Þeir höfðu gert tvö göt á börð- in, svo sem hálfmælu frá jöðrunum og krækt í þau krókum. Þeir settu svo langa strengi í þessa króka og festu við aktygin, og drógu svo hattinn með þessu móti nærri 500 faðma, en til allrar hamingju var land þetta ákaflega slétt og flatt, svo að hattkúfurinn var ekki eins illa kominn og ég hafði búizt við. Tveimur dögum eftir þennan atburð skipaði keisari þeim hluta af herliði hans, sem setu átti í borginni og umhverfis hana, að vera viðbúið, og tók þá fyrir að gera sér mjög einkennilega skemmtun. Hann ósk- aði þess, að ég skyldi standa eins og risastandmynd og glenna mig svo sem ég gæti mér að meinalausu. Því næst bauð hann háyfirforingja sínum, sem var gamall og reyndur foringi og mér mjög hlynntur, að skipa liðsmönnum sínum í þétta fylkingu, og láta svo liðið ganga milli fóta minna, og skyidu 24 vera í hverh þverröð, en 16 af riddaraliðinu, og ganga þar með þörðum bumþum, þlaktandi fánum og brugðnum sverðum. í fylkingu þessari voru þrjár þúsundir fót- gönguliðs og 100 riddarar. Loks var mér gefið frelsi eftir samþykkt alls ráðs- ins, með skildögum, sem ég vann eið að eftir Þv sem lög þeirra mæla fyrir, og skyldi ég þá halda upp hægra fæti mínum með vinstri hendi og leggja hæ9rl handar löngutöng á hvirfil minn og þumalfingur á hægra eyra. Upphafið á frelsisskrá minni hljóðaði svo: „Golbastó Mómaren Gúrdíló Shefinn Múllí Úllí Gúrt, hinn stórvoldugi keisari Putalands, unaður og skeif' ing alheimsins, konungur allra konunga, og meir' vexti en synir mannanna, sem þrýstir á jörðina inn að miðju, þegar hann stígur á hana, og rekur sig upP undir sólina, sem lætur alla drottna veraldar skjálfa í hnjáliðunum ef hann hnyklar brúnirnar, yndislegur eins og vorið, notalegur eins og sumarið, ávaxtaríkur eins og haustið og voðalegur eins og veturinn. Hans dýrlega hátign ber fram fyrir herra Mannfjall, sem ný' lega kom til vors himneska veldis, eftirfarandi sátt' málagreinir, sem hann á að heita með dýrum eiði a® halda.“ Þá kom sáttmálinn í 8 greinum og endaði á þessa leið: ,,Þá er lögeiður að því unninn að halda allar þessar greinir, skal veita fyrrnefndu Mannfja^* daglega mat og drykk svo mikinn, að nægi einni þós' und sjö hundruð tuttugu og fjórum af þegnum vorumi og skal hann hafa frjálsan aðgang að hátign vorri oQ njóta annarrar náðar vorrar og hylli. Gefið í aðseturS' 448

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.