Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1969, Page 45

Æskan - 01.10.1969, Page 45
ÆSKAN 0 G FRAMTÍÐIN Að vera ungur er sígilt fyrirbæri i mannheimi,, kynslóðir koma og kynslóðir fara, að fæðast, þroskast, blómstra, hrörna og deyja er hið taktfasta æviskeið lifsins, í hverri mynd sem það birtist. Þegar ég var barn að aldri, voru þrjár kynslóðir á lífi 1 minni fjölskyldu, og ég var yngstur, nú er taflið snúið við, enn eru að visu kynslóðirnar þrjár, en ég er orðinn elztur. Svona leik- ur lífið sér að börnum sinum. í hartnær ellefu hundruð ár hefur þetta verið að gerast hér á íslandi, eða allt frá því er landnámsmenn komu hingað og eign- uðu sér staðfestur. Kynslóðaskiptin hafa ávallt verið með sama blæ. Starf hverrar kynslóðar hefur verið að viðhalda sjálfri sér og ala upp og móta aðra nýja. Æskan hefur þar litlu um ráðið sjálfri sér til handa, til þess skorti hana þroska, menntun og áræði. Starfið var hinna eldri, að byggja upp og halda við, draga björg í bú, sjá um allar hinar venjulegu þarfir, sem þekktar voru á hverjum tíma og auðna lét mönnum i té, æskan var þar ekki hlutgeng svo að neinu næmi, hún varð að hirast í horninu og vera góð og hlýðin, aginn var oft strangur, og til bar það, að hún var hirt með vendi og beygð til hlýðni og undirgefni með valdi hinna eldri manna. Svona var þetta fyrr meir á landi hér. En þetta hefur breytzt á síðari timum. Uppeldi æskunnar er orðið allt annað en var. Áður átti hún ekki kost neinnar fræðslu né menntgnar sem neinu næmi og að haldi kom, heimilin sáu um að kenna að starfa hvaðeina, sem að haldi mætti koma í lífsbaráttunni. Þar var á hefðbundinn háttur um aldir og ekki breytt neitt um svo nokkru næmi. Svona bjó hver kynslóð í landinu á umliðnum öldum. Nýir straumar í uppeldismálum hafa nú breytt uppeldinu. Það verður að telja, að með tilkomu fræðslulaganna, sem Heima- stjórnin frá 1904 kom á, hafi allt uppeldi breytzt til hins betra. Barnafræðsla var lögfest og skólahús risu upp viðsvegar um landið, þar sem æskulýðurinn naut aukinnar fræðslu og þekking- ar við mun betri aðstæður en áður hafði verið. Enda varð sú raunin á, að framfarir jukust í landinu með auk- inni menntun og þekkingu, aldamótamennirnir sanna það nú f dag. Þá má nefna Ungmennafélagshreyfinguna, sem barst til landsins laust eftir aldamótin. Með tilkomu ungmennafélaganna fékk æskan í landinu í fyrsta sinn að taka þátt í félagsmálum, sem voru við hennar hæfi og þrár. Hugsjónir fæddust, og hugsjónir hafa rætzt, sem ungmenna- félögin báru fyrir brjósti i öndverðu. Æskan tileinkaði sér i þessum félagsskap kvæði góðskáldanna islenzku, og það var sungið af þrótti og hriíningu Ég vil elska mitt land, ég vil auðga mitt land, ég vil leita að þess þörf, ég vil létta þess störf... ég vil láta þaS sjá margan hamingjudag. Og skáldin trúðu á æsk- Norðurlandamót skáta 1969 var haldið í Leyningshólum í Eyjafirði 11.—13. júlí í sumar. Þar voru samankomnir nálega 300 skátar á ýmsum aldri. Þrátt fyrir frekar erfitt veðurlag, undu allir sér vel við leiki og störf. Mótið hófst á föstudagskvöld með þvi, að Helgi magri og kona hans heimsóttu skátana og fluttu þeim kveðju sína. Þá notuðu skátarnir timann um kvöldið til að koma sér fyrir og setja upp tjaldbúðirnar. Á laugardaginn fóru síðan allir í gönguferðir um nágrennið og fengust við ýmis verkefni á leiðinni. Allan laugardaginn var rign- ing af og til, og gerði það a.lla framkvæmd dagskrárinnar sein- legri og erfiðari en ella. Þannig varð að flýja með „varðeldinn" undir tjaldþak á laugardagskvöldið, en meðan rigningin buldi á tjaldinu þá héldu þátttakendur sér .hlýjum með söng og ýmiss konar skemmtun. Á sunnudaginn var stytt upp og allir í sólskinsskapi. Þann dag fór mestur tími í umfangsmikla stigakeppni fyrir einstaklinga og var áhuginn það mikill, að um 80% þátttakenda luku keppninni og fengu sína viðurkenningu. Eitt af tjaldbúðahliSum mótsins.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.