Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1969, Page 47

Æskan - 01.10.1969, Page 47
NÁTTÚRA í Náttúru er það náttúrulega Björgvin Gíslason, sem leikur á gítar, Sigurður Árnason bassaleikari, Rafn Haraldsson trommuleikari og svo Jónas R. Jónsson, sem spilar á flautu, þegar hann er ekki að syngja. ÆVINTÝRI Arnar Sigurbjörnsson er í hljómsveitinni Ævintýri og spilar á gítar (sóló), bróðir hans Kalla heitir Sigurjón Sighvatsson og spilar hann á bassa, Sveinn Larsson er trymbill, Birgir Hrafns- son gítarleikari, og svo er bezt að minnast á hann Björgvin Halldórsson, sem raular með þeim öll lög. POPS Hljómsveitina POPS skipa Ólafur Sigurðsson, sem spilar á trommur, Óttar Hauksson, spilar á gítar, Óttar er nýjasti með- limur hljómsveitarinnar, bassaleik annast Pétur Kristjánsson, og að siðustu kemur Sævar Arnarsson, sem spilar á sólógítar. TRÚBROT Gunni, Kalli Rúnar, Shady, Gunni skipa Trúbrot og 'þau spila á trommur, orgel, bassa, tamborínu, gítar. ROOF TOPS Allir vita, hverjir skipa hljómsveitina Roof Tops, en faerri vita, 'að trommuleikarinn Ari Elvar Jónsson og bassa- 'eikarinn Jón Pétur Jónsson eru bræður, Sveinn Guðjónsson orgelleikari og gitarleikarinn Gunnar eru einnig bræður, svo kem- ur saxófónleikarinn Guðni Pálsson. JÚDAS Júdas er llklega lesendum Æskunnar í fersku minni, en það er bezt að þeir fljóti með. Magnús Kjartansson er orgel- leikari, Finnbogi bróðir hans spilar á bassa, Vignir Bergmann Magnússon spilar á gltar og að slðustu er nýi trommuleikarinn, sem heitir Hrólfur Gunnarsson. 463

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.