Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.10.1969, Qupperneq 50

Æskan - 01.10.1969, Qupperneq 50
hún leiðinleg. Hún kunni ekki að leika sér. Svo stríddi hún oft og skemmdi fyrir þeim. Tóta var niu ára. En um leið og Tóta hljóp af stað, sá stóra tréð í garðin- um hana. Þegar stormurinn þaut fram hjá, svo að greinarn- ar svignuðu, sagði tréð: „Heyrðu, gamli vinur. Blddu and- artak.“ Stormurinn stanzaði og hlustaði. „Við þurfum að lækna hana Tótu. Þetta gengur ekki lengur. Öll börnin I nágrenninu óttast hana.“ Stormurinn þekkti Tótu og svaraði: ,,Ég væri löngu bú- inn að því, ef ég gæti. Hún á fyrir því.“ Þá svaraði gamla tréð: „Láttu mig fá húfuna, sem hún er með. Settu hana hérna í hendurnar mínar í vestri. Svo skaltu sjá, hvað gerist." Stormurinn þaut af stað og sagði: ,,Úf-úf-úf-úf.“ Skyndi- lega fauk húían af Tótu. Hún þaut hátt upp í loftið. Tóta hrópaði: „Æ, æ, húfan, húfan. Nú verð ég að borga húfuna hans Gunnars." En þá sá hún, að húfan festist á gamla trénu. Hún and- aði léttar. „Iss, þetta er allt í lagi. Ég get alveg náð í hana þarna." Svo hljóp hún af stað. Þá hvíslaði tréð að storminum: „Blástu, þegar ég segi.“ Og vindurinn kinkaði kolli. En þegar Tóta teygði sig I húfuna, blés stormurinn: ,,Úf- úf-úf." Greinin sveigðist og beygðist. Og Tóta náði ekki húfunni, hvernig sem hún hoppaði. ,,Æ, ég verð að hvíla mig,“ sagði hún og settist. Þá hætti stormurinn að blésa. Greinin seig aftur niður. Nú hentist Tóta á fætur og ætlaði að gripa húfuna. En stormurinn varð á undan. Greinin sveigðist og beygðist. Og Tóta náði ekki húfunni, hvernig sem hún hoppaði. Hún settist aftur. Hún var orðin dauðþreytt. Öðru hverju leit hún í áttina að húfunni og sá, að hún var á sínum stað. Allt í einu þaut hún á fætur og greip báðum höndum um greinina. En stormurinn var sterkur. Hann blés nú sterkar en fyrr, svo að greinin sveigðist og beygðist. Og Tóta hékk í grein- inni eins og þvottur á snúru! „Æ, æ, æ!“ hrópaði Tóta. Hún var dauðhrædd. „Ég, ég kemst ekki niður." Og hvernig sem hún spriklaði og sparkaði, komst Tóta ekki niður. „Hjálp, hjálp," kallaði hún og leit i kringum sig. En hún sá engan. Og stormurinn hélt áfram að blása um tréð. Greinar þess voru eins og strengir i fiðlu. Sumar grannar, aðrar gildar. Og Tótu til mikillar undrunar heyrði hún tréð tala. „Ég skal hjálpa þér, Tóta mín, ef þú hættir að striða." ,,Ha?“ spurði Tóta og leit í kringum sig. Hún ætlaði varla að trúa sínum eigin eyrum. „Ég skal hjálpa þér, Tóta min, ef þú hættir að stríða," sagði tréð aftur. Tóta var alveg að missa takið og horfði hrædd til jarðar. ,,Ég skal steinhætta að strlða krökkunum, ef þeir vilja kenna mér að leika mér.“ Vindurinn hætti að blása. Greinin réttist aftur. Tóta tók húfuna og sagði: „Þakka þér fyrir." En gamla tréð vildi tala við Tótu. „Seztu hérna andartak og hlustaðu á mig," sagði tréð. ,,Þú þarit að læra að hlusta." Greinin sveigðist og beygðist, og Tóta náði ekki húfunni. 466
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.