Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1969, Page 71

Æskan - 01.10.1969, Page 71
Krossgáta 1 Það hafa svo margir skrifað okkur að undanförnu og beðið um að teknar yrðu upp krossgátur ( blaðinu, að hann Grímur Engilberts linnti ekki látum, fyrr en hann fékk mig til að taka upp gamalt tómstunda- gaman síðan ég var 12—17 ára, að semja krossgátur. En nú er það ykkar að láta mig vita, hvernig til hefur tekizt, og vonast ég eftir að fá margar ráðningar, ráðleggingar og fillögur til úrbóta. Ennfremur, er krossgát- an of létt eða of þung? Utanáskrift krossgátunnar er: KROSSGÁTAN, Æskan, Box 14, Reykjavík. LÁRÉTT: 1 sólarbirta, 6 kaupið, 8 skammstöfun, 9 héldu, 13 eigið. LÓÐRÉTT: 1 allir slagir spilanna, 2 Kaupfélag Árnesinga, 3 islenzkir ungtemplarar, 4 ónefndur, 5 fuglar, 7 rótaS upp, 10 ekki, 11 innifalinn tilkostnaSur, 12 nútiS. Og þá skulum við snúa okkur að skýr- ingunum. Sumir reitir eru svartir og í þá á vitan- 'ega ekki að skrifa. Sé hluti af reit svart- ur, endar orðið þar og nýtt hefst fyrir neð- an eða við hliðina. Orðin byrja aðeins I beim reitum sem eru tölusettir. I næst- siðasta blaði lærðuð þið að þekkja granna °g feita (þreiða) sérhljóða. Það er enginn hiunur gerður á, hvort stafurinn er a eða á, i eða i, i eða y, ý eða í o. s. frv. Lárétt Þýðir að lesa eigi orðið frá vinstri til hægri, en lóðrétt að ofan og niður. Orðin, sem ykkur eru svo gefin f skýringunum, eiga að leiða ykkur að þvi rétta, og skal ég 9efa ykkur nokkur dæmi: Hungraður — svangur. Hennar — stúlkunnar eða kon- unnar. Flugfélag Islands — FÍ eða lceland- air. Þátíð — þt. Vegna þess að við verðum að undirbúa blaðið með miklum fyrirvara, verður að- eins hægt að gefa mánaðar skilafrest frá útkomudegi hvers blaðs, af því að við ætl- um að veita. verðlaun. Verðlaunin verða þrenn fyrir hverja krossgátu, bækur. Þau verða send strax og skilafresti er lokið og dregið hefur ver- ið úr réttum ráðningum. Ráðningin verður svo alltaf birt í næsta blaði á eftir, en nöfn þeirra sem unnu tveimur til þremur blöðum seinna. Svo eitt gott ráð að lokum: Klippið ekki krossgátuna út úr blaðinu, þá skemmið þið blaðið ykkar. Teiknið hana heldur upp og skrifið orðin inn í reitina og sendið okk- ur. Þá eigið þið heilt blað eftir. Þetta ætt- uð þið að gera við allar getraunir, af þvi að ég veit að ykkur þykir vænt um blaðið ykkar og viljið eiga það heilt, þegar þið verðið fullorðin. Svo að lokum til hamingju með afmæli blaðsins og gangi ykkur vel með ráðning- arnar. SigurSur H. Þorsteinsson. seifur og sauðkindin Eengi hefur sauðkindin mátt 'iða mnrgt vegna annarra dýra. |’ess vcgna fór hún citt sinn " fund Seifs til þess að lctta á eymd sinni. Seifur virtist all- ur at' vilja gerður til lijálpar og sagði við kindina: „Eg sé að visu, nð ég hef skapað þig of óvarða, ræktarsama sköpun- arverk mitt. Kjóstu nú, hvern- ig þú vilt helzt að ég bæti úr þessu; hvort ég eigi að vopna munn þinn hvössum vígtönn- um og fætur þina hvössum klóm.“ „Æ, nei,“ sagði sauðkindin, „ég vil ekki eiga neitt sam- eiginlegt með villidýrunum." „Eða á ég að eitra munn- vatn þitt?“ spurði Seifur. „Æ, eitruðu snákarnir eru svo hataðir," andmælti sauð- kindin. „Jæja, livað gct ég þá gert? Ég vil gjarnan rækta horn á enni þér og veita þér afl í hnakkann.“ „Ekki heldur það, góðsami faðir, ég gæti þá orðið eins hrindingagjörn og hrútur." „Og samt,“ sagði Seifur, „þá verðurðu sjálf að vera fær um að ráðast á aðra, ef aðrir eiga að forðast árásir á þig.“ „Verð ég það!“ stundi sauð- kindin. „Æ, láttu mig þá, mis- kunnsami faðir vera eins og ég er, þvi möguleikinn til árása er ég hrædd um að geri mig hneigða til árása. Og þá er betra að þola ranglæti en fremja það.“ Seifur blessaði þá hina rækt- arsömu sauðkind, sem frá þeirri stundu gleymdi að kæra. K. G. sneri úr esperanto. 487

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.