Æskan - 01.05.1974, Page 6
kf þið hefðuð verið uppi fyrlr
rúmlega þúsund árum og
hefðuð spurt, hvað þrumurnar vaeru,
munduð þið hafa fengið allt annað svar
en þið fáið nú við þeirri spurningu. Þá
hefði ykkur verið svarað eitthvað á
þessa leið:
„Þrumurnar? Þær stafa af því, að guð-
inn Þór, hinn sterki, ekur um þveran
himin í vagni sínum. Vagninn hans er
dreginn af geithöfrum, og þrumuhljóðið
er skröltið í vagninum.'1
Þá hefðuð þið kannski spurt, hvað
eldingarnar væru, og fengið þetta svar:
„Eldingarnar eru neistarnir, sem
hrökkva undan klaufum geithafranna,
þegar þeir stíga á grjót — og svo geta
það líka verið neistar af hamri Þórs,
þegar hann kastar honum [ jötnana
illu ...“
Þór var ákaflega sterkur, og hann
átti hamar, sem var bezta vopn hans.
Þegar hann barðist við óvini sína, sló
hann þá í höfuðið með hamrinum, og
hamarinn hafði þá undraverðu náttúru,
að hann kom alltaf aftur til Þórs, jafn-
vel þótt hann kastaði honum langt I
burtu.
Jötnarnir, sem hann átti í höggi við,
voru Ijótir þursar, sem áttu heima djúpt
niðri í jörðinni. Þeir sátu alltaf um að
gera mönnunum og hinum guðunum
eitthvað til miska, og þess vegna átti
Þór í baráttu við þá.
Eitt sinn lagði Þór af stað til að leita
fundar við konung jötnanna, Útgarða-
Loka, og hafði með sér systkinin Þjálfa
og Röskvu, sem jafnan þjónuðu honum.
Þegar komið var langt fram á nótt,
komu þau að einkennllegu húsi. Á einni
hlið þess voru gríðarlega stórar dyr, en
út úr því öðrum megin var lítið afhýsi.
Þangað inn fóru þau og lögðust til
svefns. En þeim brá í brún næsta morg-
un, því þá kom stóreflis risi og tók upp
húsið, sem þau höfðu sofið í.
„Þetta er vettlingurinn minn," sagði
risinn, og nú skildist þeim, að afhýsið
hafði ekkert annað verið en þumallinn
á vettlingnum!
Risinn vísaði þeim til Útgarða-Loka,
og hann tók þeim vel og sagði, að nú
skyldu þau sýna, hvað þeim væri til
lista lagt. Þjálfi átti að þreyta kapp-
hlaup við einn þjón Útgarða-Loka, en
þótt Þjálfi hlypi eins hratt og vindurinn,
var hinn alltaf á undan, þótt undarlegt
værl.
Þór og
jötnarnir
„Nú skalt þú sýna okkur, hversu mik-
ill drykkjumaður þú ert, Þór," sagði Út-
garða-Loki og fékk Þór drykkjarhorn.
Það var mjög langt, en ekki eftir því
vítt, svo að Þór áleit, að hann væri
maður til að tæma það.
„Duglegustu menn mínir drekka út
úr því í einum teyg,“ sagði konungur
jötnanna, „meðalmenn tæma það 1
tveimur teygum, en það eru litlir karlar,
sem ekki Ijúka úr því I þremur teygum."
Þór dró andann djúpt að sér og setti
hornið á munn sér. Hann drakk og
drakk, þangað til hann hélt, að hann hlyti
að hafa tæmt það, en þegar hann leit
niður í það, sá hann, að það var enn
milli hálfs og fulls. Þá reiddist hann og
drakk annan teyg — og þá hafði hann
drukkið svo mikið, að honum fannst
hann alveg vera að springa, en samt
var enn mikið eftir í horninu. Þá varð
hann svo reiður, að hann neitaði að
drekka meira, enda þótt jötnarnir gerðu
gys að honum fyrir það.
Þá kom köttur hlaupandi, og kon-
ungur jötnanna sagði:
„Getur þú lyft ketti mínum með því
að styðja hendinni undir kvið hans?"
Þór áleit, að sér mundi reynast það
auðvelt, en þótt hann beitti kröftum
sfnum til hins ýtrasta, stóð kötturlnn
sffellt í allar lappirnar, en skaut aðein*
upp kryppunni. Að lokum varð hann
samt að lyfta einni löppinni frá gólfinU-
Jötnarnir hlógu nú enn þá meira en
áður, en Þór var stórreiður.
„Komið hingað og takizt á við mig!
sagði hann.
„Þú getur reynt að takast á við ömmu
mína," sagði Útgarða-Loki, „hún heitif
Elli." Og svo tókust þau fangbrögðum,
Þór og kerlingin Elli. Og eftir langa e9
harða baráttu tókst kerlingunni að koma
Þór hinum sterka á annað hnéð — en
þá varð hann líka að hætta glímunni-
Daginn eftir vildi hann halda heim-
leiðis, og Útgarða-Loki fylgdi honum
úr hlaði. Þegar þeir komu niður að
sjónum, sá Þór, að mikið hafði lækka®
í honum, og þá sagði konungur jötn-
anna:
„Nú skal ég segja þér, hvað I rau11
og veru hefur átt sér stað, því ég he
beitt þig töfrabrögðum, svo að þú skyid'
ir ekki sjá, hvað fram fór í raun réttri-
Þjálfi hljóp mjög hratt, en hann þreý1*1
kapphlaup við huga minn, svo að Það
var ekki von, að hann ynni. Á horninu,
sem þú drakkst af, stóð annar endinn
úti í sjó, og þú drakkst svo mikið, að
auðséð er, hversu lækkað hefur í sjón'
um. Við jötnarnir urðum hræddir vl
þetta, en hræddari urðum við, þegar Þa
lyftir kettinum, því það skaltu vita, a
þetta var ekki venjulegur köttur, heldur
Miðgarðsormurinn sjálfur, sem Iig9u^
hringinn f kringum jörðina alla. Þa
munaði minnstu, að þú kipptir honum
upp úr hafinu, þar sem heimkynni hana
eru.“
Það var slæmt, að ég skyldi ekki vit®
■ þetta, hugsaði Þór, en svo hélt Úl
garða-Loki áfram máii sínu:
„Kerlingin Elli, sem þú tókst á við, V®
engin önnur en ellin sjálf, og á hen
sigf'
Víð
geta hvorki guðir, menn né jötnar
azt, en þú hélzt svo lengi velli, að
vorum næst því að halda, að þú mund
ráða niðurlögum hennar. Nú hef ég sað
þér frá öllu, svo að þú megir vita, a
við jötnarnir getum því aðeins reist ron
við þér, að við beitum töfrabrógðu111'
og þess vegna skaltu aldrei framar koma
hingað!" g
Þór greip hamar sinn og ætlaði a
slá konung jötnanna, en þá var
hanh
allt í einu horfinn, og Þór stóð eftir
á víðavangi með þjónum sínum.
Síðan lögðu þau af stað heim 3
til heimkynna guðanna.
úti
ftur
4