Æskan - 01.05.1974, Blaðsíða 57
Eggjunarorð
í ár halda íslendingar hátíð og fagna 11 alda
byggð í landinu.
Það fer vel á því, að af því tilefni stígi lánds-
f^enn á stokk að fornum sið og strengi þess heit,
að leggja fram AUKASKERF til þess að fegra og
bæta; ekki aðeins landið sjálft, heldur og líf
fölksins í landinu — gera það sér og sínum og
samfélaginu í heiid hamingjusamara; hver með
sínum persónulega hætti í sinni eigin aðstöðu.
Tvímælalaust er eitt það bezta, sem hver og
einn getur gert samfélaginu til heilla, að draga
stórlega úr og koma sem mest í veg fyrir um-
ferðarslys og mannskaða og eignatjón, sem af
Þeim hljótast.
Landssamtök klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR
vilja hvetja hvern ábyrgan og vitiborinn vegfar-
anda — ekki sízt æskufólkið — til þess að taka
nú rögg á sig með umönnun og gæzlu í um-
ferðarlegu tilliti. Hver og einn gái fyrst og fremst
að sjálfum sér, en láti þó ekki þar við sitja, held-
Ur gæti einnig bróður síns, eins og öllum ber
heilög skylda til.
Þótt mörgu þurfi að bylta og breyta í ytri að-
stæðum umferðarinnar, stendur það jafnan ó-
haggað og á alltaf við, að farsæld eða óham-
ingja hvílir fyrst og fremst í hendi hvers og eins
vegfaranda; ökumanns jafnt sem fótgangandi.
Við höfum sameiginlegs fjöreggs að gæta og
ættum að sameinast í einum, sterkum vilja og
markvissri viðleitni til þess að gera umtalsvert
átak á vettvangi umferðarinnar, okkur öllum til
heilla.
Hví skyldum við ekki gera það sem við getum
til góðs, aðeins, ef við viljum?
F. h. Landssamtaka klúbbanna Öruggur akstur.
Hörður Valdimarsson.
Stefán Jasonarson.
Kristmundur J. Sigurðsson.
Ingjaldur ísaksson.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Hafsteinn Jónsson.
VERDLRUN
í fjölskyldugetrauninni „Á HRINGVEGINUM"
verða sem hér segir:
L Vikudvöl fyrir fjölskylduna á hóteli við Mý-
vatn eða Laugarvatn haustið 1974 eða sum-
arið 1975.
M. 3 postulíns-veggplattar þjóðhátíðarnefndar
1974 — danskir, frá Bing & Gröndahl.
III- Þjóðhátíðarpeningur Bárðar Jóhannessonar
— handunninn úr silfri.
IV. Minnispeningur Æskunnar á 75 ára afmæli
hennar.
V. Annálar íslenzkra flugmála, 2 hefti.
VI. Ævintýri og sögur eftir H. C. Andersen, 3
bindi. Svör skulu hafa borizt fyrir ágústlok
næstk., annað hvort LKL ÖRUGGUR AKSTUR,
Ármúla 3, Reykjavík, eða Barna- og unglinga-
blaðinu ÆSKUNNI, Laugavegi 56, Reykjavík.
DREGIÐ VERÐUR ÚR RÉTTUM SVÖRUM
1. SEPTEMBER!
Heildarverðmæti vinninga er um kr. 100.000,00.
Landssamtök klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR
Barna- og unglingablaðið ÆSKAN
FYRSTU VERÐLAUN
VIKUDVÖL FYRIR FJÖLSKYLDUNA Á HÓTELI VIÐ MÝVATN EÐA LAUGARVATN