Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1974, Blaðsíða 30

Æskan - 01.05.1974, Blaðsíða 30
alla sögu Eiríks rauða og Þorfinns karlsefnis, og með eld- legum áhuga lýsti hann þessu fagra undralandi eins og hann hefði sóð það sjálfur: að £ar væri hver lækur fullur af laxi, kornstengur yxu þar útsæðislaust og vínviður væri í hverjum skógi. „Undarlegt er þetta," mælti Sir Dave, ,,en mér finnst aagan sennileg. Það er þá meira en uppspuni, að menn á þessari afskekktu eyju, íslandi, við norðurhjara heims, viti meira en aðrir,“ bætti hann við, eins og hann talaði við sjálfan sig. Svo gekk hann nokkra stund þögull við hllð Þorbjarnar, og loks sagði hann: ,,En eitt er mér óskilj- anlegt, og það er það, að nokkur þjóð skuli láta slíkt land ganga sér úr greipum eftir að hafa fundið það og eignazt." „Er það ekki skiljanlegt?" svaraði Þorbjörn. „Þjóð, sem áður var fræg um mörg ár, var það skammsýn að gefa sig á vald erlendra konunga og er nú orðin svo dáðlaus og heillum horfin, að hún lætur hvern erlendan skipstjóra stíga á hálsinn á sér. Hér er enginn, sem ber I brjósti hug til frægðarverka." „Enginn?" spurði Sir Dave og leit til Þorbjarnar. „Þér lesið hugsanir mínar, herra,“ sagði Þorbjörn. „Hvf skyldi ég svara þessu neitandi? Hið ókunna land í vestri hefur alla mína ævi aldrei horfið úr huga mér, hvorki í vöku né svefni. Oft hef ég setið úti á Öndverðarnesi og starað út á hafið. Ég hef séð sólina hníga við hafsbrún og þá hugsað: Nú hnígur sólin Ifka að baki fjalla á landinu f vestri, sem ég er erfingi að, en get aldrei fundið. Ég á hvorki auð né skip, og án þess kemst enginn yfir hafið." „En hvað mundirðu segja, ef ég útvegaði þér fé og far yfir hafið?“ spurði Sir Dave. Þorbjörn leit undrandi á hann. „Eruð þór að gera gys að mér?“ „Nei, það veit Guð,“ sagði Sir Dave. „Ég geri sjaldan að gamni mínu og allra sízt í þessum efnum. Boð mitt er í alvöru mælt.“ Þorbjörn varð svo klökkur, að hann gat engu svarað, svo óvart kom honum það, að allir draumar hans skyldu nú vera að rætast. Hann gat ekki annað en þrýst innilega báðar hendur gestsins og síðan fleygði hann sér í faðm hans og grét eins og barn.------- Sir Dave sat lengi á tali við Burlington skipstjóra dag- inn eftir þetta samtal, og að lokum urðu þeir ásáttir um málið. Tveimur dögum seinna var séra Jón vakinn með þeim fréttum, að bæði gestur hans, Sir Dave, og Þorbjörn væru horfnir, en bréf hafði þó verið skilið eftir, og var það á þessa ieið: Háttvirti herra! Það hafa orðið þeir atburðir, sem neyða mig til að yfirgefa yður fyrr en mig varði. Ég mun ætíð minnast gestrisni og góðvildar þeirrar, er ég naut hjá yður. —* Gamli félagi yðar — Þorbjörn — hefur slegizt [ för með mér. Ef til vill komum við til yðar aftur næsta haust, og vonast ég þá til að hafa frá ýmsu að segja, en ef ekki, þá bið ég yður að taka við gulipeningum þeim, sem ég legg hér með, en raunar skulda óg þór og is- landi miklu meira. C. C.“ Séra Jón las þetta bréf tvisvar og velti því fyrir sér, hvers vegna maðurinn hefði undirritað það með stöfunum C. C. (Christofer Columbus). Hér var gátu að ráða, sem ekki var auðleyst. Og sú eina upplýsing, sem hann fékk hjá Rifs-búum, var sú, að með fióðinu hefðu skipverjar undið upp segl og látið í haf og stefnt beint í vesturátt. I vestur var siglt í sjö dægur. Hafið var úfið og úlfgrátt, og úthafsöldurnar lömdu gnoðina og freyddu um borðin. Þá kölluðu skipverjar að nú sæist land. Þorbjörn hneigði sig til samþykkis og bauð skipstjóra að stýra f suðvestur, því að þar væri lands þess að leita, sem ferðin var gjörð til. — Skipstjóri nöldraði í hljóði um að það væri óðs manns æði að sigla svona stefnulaust dag eftir dag. En Sir Dave bauð honum að hlýða gamla manninum. Framhald. 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.