Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1974, Blaðsíða 56

Æskan - 01.05.1974, Blaðsíða 56
F— kveinstafi sína með tárin i augunum. Göldrótta skatan anzaði ekki. Þegar fiskarnir voru búnir að gráta lengi, rak hún út úr sér tunguna og sagði: „Marga vitleysuna hef óg heyrt. Vilja fiskarnir fara að spóka sig á þurru landi? En þið megið það fyrir mér. Komið þið bara nær mér.“ Skatan settist á halann og reis upp að framan. Hún hvæsti og yggldi sig framan í fiskana góða stund. Það var galdurinn. „Svona, nú er það búið," sagði hún. „Þegar sólin kemur upp í fyrramálið, fáið þið fætur og getið andað að ykkur lofti með tálknunum. Þá skuluð þið ganga á land, en þið megið ekki vera of lengi, því að þá verðið þið að ganga á tveimur fótum alla ykkar ævi. Og það viljið þið líklega ekki.“ Fiskarnir hneigðu sig djúpt og þökk- uðu fyrir sig. Um morguninn, þegar sól- in rann upp, géngu þeir á land. Þeir voru búnir að fá fætur. IKrossfiskurinn í flæðarmálinu skelli- hló, þegar hann sá göngulagið. Fiskarnir héldu áfram, þar til þeir voru komnir heim til Garðars. Hann vaknaði, þegar hurðin opnaðist, og sett- ist upp I rúminu. Hann hafði aldrei séð annað eins. Það komu fiskar gangandi inn á gólfið í áttina til hans. „Slepptu henni Ýsu undir eins,“ sagði lúðan, „annars bitum við þig.“ Garðar breiddi upp fyrir höfuð og var dauðhræddur. „Það er bezt að fara gætilega að öllu og koma kurteislega fram," sagði síldin. En lúðan fór að gráta og sagði: „Elsku góði landfiskur, slepptu henni Ýsu og slepptu henni strax, því að við megum ekki tefja lengi. Henni Ýsu litlu leiðist svo ' hérna. Sérðu ekki, hvað hún er orðin föl og mögur?" Garðar leit á litla fiskinn í skálinni og sá, að honum leið ekki vel. „Ég verð að klæða mig fyrst,“ sagði hann. „Viltu lofa því að sleppa henni?“ sagði lúðan „Já, ég lofa því,“ sagði Garðar. „Nú förum við, vinir mínir,“ sagði lúðan í lægri tón. „Ég kann bezt við mig heima.“ -----Garðar klæddi sig og flýtti sér mikið, því að hann var hræddur um, að litli fiskurinn væri að deyja úr leið- indum. Hann tók skálina og læddist niður stigann. Þegar hann kom niður I fjöruna, sá hann lúðuna og fylgifiska hennar steypa Kirkjurækni Fólkið f Hákoti var að klæða sig í sparifötin. Allir, sem vettlingi gátu vald- ið, ætluðu að fara til kirkjunnar, því að það var sunnudagur, og blessað veðrið var svo gott. Ég varð nú allt í einu svo ósköp kirkjurækinn. Ég mátti ekki hugsa til þess að vera svo óguðlegur að fara aldrei til kirkju. Ég hljóp fram í búr- dyrnar og sá, hvar mamma mín var að drekka úr kaffibollanum sínum inni í búrinu. „Ég vil fara til kirkjunnar,“ sagði ég með ólundarsvip. „Ekki núna, góði minn, þú ert svo ungur,“ svaraði mamma mín. „Ég, sem er bráðum sjö ára.“ „Það er sama, þú ert svo Iftill." „Ég, sem er svo stór’.“ Ég tyllti mér á tær og seildist eins langt og ég gat upp á dyratréð. „Ekki fer hann Stebbi litli til kirkjunn- ar,“ sagði mamma mín. „Það er nú annað mál,“ svaraði ég, „hann, sem er ekki nema á þriðja ár- inu.“ Mamma mín sagði, að ég mætti nú ekki vera svona óþekkur. Hún sagði, að ég léti víst svona af því, að mig langaði svo mikið til að koma á bak honum Skjóna. Ég varð nú svo reiður, að ég gat ekki sér á höfuðið fram af bryggjunni. Hann fleygði Ýsu litlu f sjóinn. Hún varð frelsinu fegin og greip sundtökin. Hinir fiskarnir fögnuðu henni. Nú höfðu þeir losað sig við lappirnar og voru eins og aðrir fiskar. Garðar lá á maganum á bryggjunni og horfði á þá. Seinast sofn- aði hann. Lúðan sá það og hélt, að hann mundi velta í sjóinn, svo að hún kallaði til hans: „En að þú skulir þora að sofna þarna, landfiskur! Þú, sem ekki kannt að synda, veslingurinn þinn. Það er bezt, að ég kenni þér að synda, þvf að það getur vel verið, að þú dettir ein- hvern tíma í sjóinn.“ Garðar óð út í sjóinn, og lúðan kenndi talað undir rós. Ég sagði mömmu minni hreinskilnislega, að ég ætlaði að sálga mér undir eins. Mér fannst ég ekki geta lifað lengur, fyrst ég fékk ekki að fara til kirkjunnar. Ég sá, að það var ekki til neins fyrir mig að steypa mér á höfuðið ofan í skyrtunnuna eða mjólk- urtrogið, því að kerlingin hún mamma mín hefði svo sem verið vís til þess að bjarga mér! — En að þjóta út f sjóinn eða lækinn? Já, það var nú dá- lítið meira vit í því. Ég hleyp því fram göngin og út á hlaðið, en nú heyri ég fótatak fyrir aft- an mig. Blessunin hún mamma mín var farin að elta mig, þó að henni væri þungt um sporið. Nú, það var ekki að sökum að spyrja. Hún náði í mig og lót mig í fangelsi. Það var svo þröngt um mig í fangelsinu, að ég gat hvorki hreyft legg né lið. Ég ætlaði nú að segja þér það, svona f trúnaði, lesari góður, að fangelsið var ekkert annað en faðmurinn hennar mömmu minnar. En þegar við Stebbi litli vorum að leika okkur að fallegu blómunum úti á túninu um hádegisbilið, þá langaði mig til að lifa ögn lengur, þrátt fyrir allt og allt. Sigurbjörn Sveinsson. honum sundtökin „Þér gengur vel. Þú ert eins vel syndur og ég, og miklu fljótari á fæti,“ sagði lúðan. Kristín kom niður að sjónum og ætl- aði að reka Garðar heim með harðri hendi. En þá sá hún bara á kollinn á honum upp úr sjónum. Hún skildi ekk- ert í því, hvernig hann hafði lært svona fljótt að synda, og hún hafði ekki séð nokkurn mann synda svona vel. Hún vissi ekki, að fiskarnir höfðu kennt Garðari að synda. Mamma hans varð ákaflega glöð. Nú þurfti hún ekki að vera hrædd um drenginn sinn framar, þó að hann væri niður við sjó. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.