Æskan - 01.05.1974, Page 14
Mannréttindaskrá
barnsins
A llsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti einróma og
birti þann 20. nóv. 1959 yfirlýsingu um
rétt barnsins, þar sem skýrt er frá rétt-
indum þeim og frjálsræði, er samtök
þjóðanna telja, að hvert barn eigi und-
antekningarlaust að njóta.
Ýmis þeirra réttinda og frjálsræðis,
sem hér er lýst, voru þegar nefnd I
mannréttindayfirlýsingu þeirri, er Alls-
herjarþingið samþykkti 1948. Þrátt fyrir
þetta var álitið, að sérstakar þarfir
barnsins réttlættu sérstaka yfirlýsingu.
Mannréttindaskrá barnsins stefnir eins
og almenna Mannréttindaskráin að vissu
marki, sem allir ættu að leitast við að
ná. Foreldrar, einstaklingar, félagasam-
tök, yfirvöld og ríkisstjórnir, allir eru
hvattir til að veita réttinum og frelsinu
brautargengi.
Hér fer á eftir óstytt yfirlýsing Sam-
einuðu þjóðanna, er samþykkt var 20.
nóvember 1959.
CÖFGI OG GILDI
MANNSINS
Þar sem Sameinuðu þjóðirnar hafa
í stofnskránni ítrekað trú sína á grund-
vallaratriði mannréttinda og göfgi °9
gildi mannsins og hafa ákveðið að beita
sér fyrir þjóðfólagslegum framförum og
betri lífsafkomu með auknu frelsi.
Þar sem Sameinuðu þjóðirnar hafa
í Mannréttindaskránni lýst því yfir, oS
sérhver maður eigi kröfu á réttindum
þeim og frjálsræði, sem þar er nefnt
án nokkurrar undantekningar svo sem
kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu.
trúar, stjórnmálaskoðana eða annarra
skoðana þjóðernis eða uppruna, eigna.
ætternis eða annarra aðstæðna.
Þar sem barn vegna líkamlegs o9
andlegs vanþroska þarf sérstaka vernd
og umönnun þar á meðal hæfilega iaga'
lega vernd bæði fyrir og eftir fæðingd-
Þar sem þörf slfkra sérstakra vaf-
úðarráðstafana hefur verið lýst í Genfat'
yfirlýsingunni um rétt barnsins árið 1924«
og einnig I Mannréttindayfirlýsingunm
ásamt álýktunum sérstakra stofnana og
alþjóðasamtaka, er fjalla um velfer^
barna.
Þar sem mannkynið skuldar barninu
það bezta, sem það hefur upp á ^
bjóða, birtir Allsherjarþingið þessa
Mannréttindaskrá barnsins, svo að Það