Æskan - 01.05.1974, Page 66
STKYKNIN
Hressing
og
örvun
Ef menn vilja neyta einhvers, er hressir og örvar, geta þeir
drukkið kaffi eða te. Hið örvandi eitur í kaffinu og teinu heitir
koffein. Það hefur áhrif á taugarnar og hressir og örvar, en er
þó 'hættulegt, einkum fyrir börn og unglinga. Fulltíða menn geta
þó drukkið kaffi og te án þess að það geri nokkurn verulegan
skaða, ef þess er ekki neytt í óhófi. — Sem dæmi um önnur
örvandi eiturefni má t. d. nefna stryknin.
Áfengi hefur aftur undantekningarlaust deyfandi áhrif eins og
ópíum o. fl. — Tóbak hefur einnig deyfandi áhrif. Tóbakseitrið,
nikótínið, er mjög hættulegt eitur, sem getur verið bráðdrepandi,
jafnvel í smáum skömmtum. í venjulegum vindli er nægilegt eitur
til að drepa þrjá menn, ef tóbakið er tuggið og því rennt niður.
— Þegar menn reykja, fer mikið af eitrinu út í loftið með reykn-
um. Það er alveg sérstaklega hættulegt fyrir börn og unglinga að
reykja tóbak. En það getur einnig verið fulltíða mönnum hættu-
iegt og valdið versnandi heilbrigðisástandi og sjúkdómum.
i *
33
I mörgum löndum er öll áfengisneyzia bönnuð vissan tíma áður en flug-
maðurinn, bílstjórinn eSa lestarstjórinn taka viS stjórn farartækja sinna.
Hættur
áfengisnautnarinnðr
Það er fyrir löngu vitað, að
margs
konar hætta fylgir áfengisnautn, en P
er þó tiltölulega stutt síðan rannsók^
leiddu í Ijós, að jafnvel örlítil áfe°9is
neyzla getur haft þau áhrif á viðbröQ
manna við ýmis tækifæri, að áhffi*1
getur margfaidazt, og kemur það e|fl
64