Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1987, Síða 5

Æskan - 01.12.1987, Síða 5
 Isari fæddur...u nærri öllum mönnum. Heldur þú að dimmur og kaldur nœturhim- inninn, sem þeir höfðu svo oft horft á yfir Betlehemsvöllum, hafi ekki fengið annan svip eftir þessa nótt, já, raunar dagarnir þeirra líka? Ég er alveg viss um það og líka viss um að líf og saga allra hirðanna, sem undruðust og glödd- ust jólanóttina fyrstu, hafi á ein- hvern hátt orðið öðruvísi en hún hefði orðið ef þeir hefðu ekki feng- ið að heyra og sjá það sem Guð gaf þessa nótt. Auðvitað vissu hirðarn- ir ekki að þeir yrðu persónur í jóla- guðspjallinu, fallegustu jólasög- unni. En þeir vissu að Guð var nærri og að honum þykir vænt um þá og alla menn. Þess vegna varð lífþeirra annað, saga þeirra önnur, — því að það gerði lífið svo miklu betra og auðugra og hlýrra að vita að Guð er góður og umfram allt að hann er nærri. Þetta veit ég um hirðana þó að ég viti annars ósköp lítið um þá. Ég veit ekki einu sinni hvað þeir heita, þessar persónur í jólaguð- spjallinu. Ég veit ekki heldur neitt um þig sem lest þessar línur, ekkert hver þú ert eða hvar þú ert eða hvað þú heitir. En ég veit þó eitt um þig. Þú ert persóna í jólasögu, einhverri jólasögu. Þú ert það og verður það hvort sem þú veist það eða ekki, vilt það eða ekki. Þú ert það vegna þess að þú átt ástvini og vini, fáa eða marga, nœrri og fjarri. Vonandi gleður þú einhvern þeirra á jólunum, hjálpar einhverj- um og lætur einhvern finna að þér þykir vænt um hann og auðvitað fyrst og fremst einhvern þeirra sem næst þér standa. Efþú gerir það ert þú um leið orðinn fallegur hluti af jólunum þeirra, sögu jólanna þeirra, hluti af minningum þeirra um gleðileg jól. Ég veit að þú vilt verða fallegur hluti af slíkri sögu sem þeim sem eiga hana í huga sér eða hjarta finnst gott að hugsa um og rifja upp. Þegar þér auðnast það ert þú lánsmaður eins og alltaf þeg- ar þú verður öðrum til gleði og þá verður þú Guði til gleði um leið, Guði sem er góður og nálægur. Það er auðveldara að muna það á jólum en aðra daga. En við œttum auðvitað öll að reyna að muna þetta alla daga. Þá yrði þessi heim- ur bjartari en hann er oft og meiri friður og meiri hlýja. Og til þess að hjálpa mér og þér til að auka við birtuna og gleðina í heiminum kom Jesús, Frelsari okkar mannanna. Hann er nærri hverja stund og alla daga. Guð gefi þér að muna það og gleðjast yfir því og eiga jól með hann nœrri huga og sál svo að frið- urinn hans og Ijósið hans blessi heimili þitt og hjarta á jólum og dagana sem koma eftir gleðileg jól. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.