Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 59

Æskan - 01.12.1987, Blaðsíða 59
kynnist maður mörgum nýjum krökk- um og það er alltaf gaman og fer einn- ig í ferðalög. í æskulýðsfélaginu finnst mér eins og öllum líði vel. Þarna þarf enginn að vera að leika neitt, að hann sé eitt- hvað stærri eða meiri en hann er en það er oft og tíðum bara gert til þess að láta bera á sér. Innst inni eru þeir sem slíkt gera frekar litlir. Hérna geta allir verið þeir sjálfir og eðlilegir." — Hvað gerið þið á fundum? „Við komum saman á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum þar sem við höfum skipt félaginu í eldri og yngri deild. Við byrjum á því að syngja saman, fáum fræðslu um Guð og för- um síðan í einhverja leiki og gerum ýmislegt annað. Að lokum les einhver úr Bíblíunni og við endum með bæn þar sem við biðjum bænavers eða frá eigin brjósti og biðjum að lokum öll Faðir vor. Þá er formlegum fundi lok- ið og við opnum súkkulaði- og gos- sölu. Þar getum við rabbað fram eftir og setið saman. Samverudagarnir fara fram í ein- hverju safnaðarheimilinu hér í Reykjavík. Við komum saman um há- degisbil og erum fram undir miðnætti. Þar hittum við krakka úr öðrum æsku- lýðsfélögum, förum í leiki, fræðumst um Guð, eldum saman og höfum sam- eiginlegt kaffi. Þá er farið í vorferða- lög út á land til þess að heimsækja önnur æskulýðsfélög. Helgarmót eru tvisvar á ári. Við förum burt úr bæn- um og eigum ánægjulegar stundir saman.“ — Fannst þér fermingarfræðslan ekki vera nægilega góð? „Nei. Ég vildi fræðast meira um Guð o| fór þess vegna í æskulýðsfé- lagið. Ég held að starfið komi mörg- um á óvart. Sumir halda að allt sé afar formfast í æskulýðsfélaginu en sú er alls ekki raunin. Á fundum sitja allir í hring, ekki eins og í sunnudagaskólan- um þar sem sóknarpresturinn talar einn.Þarna fá allir að tala og tjá sig, segja hvað þeim býr í brjósti. Mér finnst að ég sé jákvæðari í garð Krists og kirkjunnar eftir að hafa ver- ið í æskulýðsfélaginu. Það breytist ýmislegt við nánari kynni. Margt, sem manni finnst vera hálfasnalegt, fer að skiljast og maður sér hlutina í nýju ljósi. Það er ekki alltaf þetta sama og í fermingarfræðslunni. Hún er líkari skóla en fundirnir. í félaginu fáum við ýmsa gesti í heimsókn og sjáum þann- ig margt á nýjan hátt.“ — Hvers virði er Guð þér? „Hann hefur breytt miklu fyrir mér. Stundum, þegar mér finnst allt vera ómögulegt, þá hefur hann bjargað og hjálpað mikið. í æskulýðsfélaginu kynnast krakkarnir Kristi miklu betur en áður. Því ráðlegg ég sem flestum að koma og kynnast félaginu, dæma af eigin raun og sjá sjálf hvernig þetta er þar sem það er ekki gerlegt að dæma eftir því sem aðrir segja.“ Yfirleitt táknar fermingin brautskráningu úr kirkjunni. Eftir fermingu koma krakkarnir lítið sem ekkert í kirkjuna. Fermingarfrœðslan miðar að því að fræða æskuna gerr um Guð, lífið og tilveruna. Þegar fermingarveislunni lýkur þá er eins og lítill áhugi sé á Kristi og því sem fram fór í fermingarfræðslunni. Eitt hefur þó tengt krakkana betur en áður við starfið í kirkjunni. Er það starf æskulýðsfélaganna þar sem krakkarnir stjórna oft og tíðum sjálf sjá um undirbúning og þegar þau eldast, fræðslu á fundunum. Samhliða þeim er svo oftast eldra fólk en þau til þess að aðstoða og miðla af reynslu sinni, jafnt í starfi sem og trú. í æskulýðsfélögunum koma krakkarnir saman til þess að syngja, biðja og fræðast um Jesú Krist, frelsara mannanna. Jafnhliða er farið í leiki og ærslast saman. Að auki er farið í ferðalög. Krakkarnir eru saman um helgar og stundum aðra daga. Þannig hitta þessir krakkar marga aðra kristna krakka, ekki aðeins úr næstu sóknum eða nágrannabyggðum heldur af öllu landinu þar sem haldin eru landsmót allra æskulýðsfélaganna. Til að fregna aðeins nánar af starfi œskunnar í æskulýðsfélögunum tók ég viðtöl við tvo krakka úr þessu starfi. Voru það þau Snorri Sigurðsson úr „Æskó Neskó“ í Neskirkju og Valgerður Franklínsdóttir úr „Vinum“ í Bústaðakirkju. Eru þau bæði í 9. bekk, Snorri í Hagaskóla og Valgerður í Réttarholtsskóla í Reykjavík. Umsjón: Pétur Þorsteinsson 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.